Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar annaðist sjúkraflug langt á haf út

Skemmtiferðaskipið var um 130 sjómílur norður af Horni.

  • Image00007_1715699455279

14.5.2024 Kl: 15:10

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni læknis um borð í skemmtiferðaskipi sem var statt við austurströnd Grænlands vegna bráðra veikinda eins farþegans um borð.

Áhöfnin á TF-EIR kölluð út til að sækja sjúklinginn og átti langt flug fyrir höndum. Töluverða skipulagningu þarf fyrir verkefni sem þetta og tók þyrla Landhelgisgæslunnar á loft laust eftir klukkan níu í morgun. 

Frá Reykjavík var flogið beint að skipinu sem var statt um 130 sjómílur norður af Horni. Hífingar gengu vel og fóru fram við afar góðar aðstæður. Þegar búið var að koma sjúklingnum um borð var flogið til Ísafjarðar þar sem eldneyti var tekið á þyrluna. 

Að því búnu var flogið beint til Reykjavíkur og sjúklingurinn fluttur á Landspítalann. 

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var nokkur hafís umhverfis skemmtiferðaskipið þar sem hífingarnar fóru fram.

Image00002_1715699455229Magnús Pálmar Jónsson, sigmaður, fer um borð í skemmtiferðaskipið. 

Image00016_1715699455378Magnús Pálmar og Daníel Hjaltason um borð í TF-EIR.

Image00026_1715699455171Hafís umhverfis skipið. 

Image00007_1715699455279Hífingarnar gengu vel.