Floti tundurduflaslæðara á vegum Atlantshafsbandalagsins er væntanlegur til landsins í kvöld.
27.3.2023 Kl: 12:12
Floti tundurduflaslæðara á vegum Atlantshafsbandalagsins er
væntanlegur til landsins í kvöld. Skipin koma til með að leggjast að bryggju í
Reykjavík og hafa aðsetur við Skarfabakka meðan á dvöl þeirra stendur.
Flotinn
samanstendur af sex tundurduflaslæðurum frá aðildarríkjum
Atlantshafsbandalagsins. Forystuskip flotans er norska skipið HNoMS Nordkapp en hin skipin fimm eru ENS Sakala frá Eistlandi, FGS
Rottweil frá Þýskalandi, HNoMS Otra frá Noregi, BNS Bellis frá Belgíu og HNLMS
Schiedam frá Hollandi.
Helstu verkefni skipanna felast í leit og eyðingu tundurdufla og
sprengja í hafinu sem hætta stafar af. Aðgerðir þess auka þannig öryggi
sjófarenda.
Meðan á veru flotans stendur hér á landi koma áhafnir skipanna til
með að æfa neðansjávardjúphreinsun á tilgreindum svæðum, þar sem
vitað er af gömlum duflum, í samstarfi við liðsmenn séraðgerðasveitar Landhelgisgæslunnar.
Tundurduflafloti á vegum Atlantshafsbandalagsins kom síðast hingað
til lands árið 2013. Þá fannst tundurdufl í Hvalfirði sem eytt var í samstarfi
við séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar. Gert er ráð fyrir að slík leit fari
aftur fram í Hvalfirði og víðar að þessu sinni.
Atlantshafsbandalagið
rekur tvo flota tundurduflaslæðara. Sá sem kemur hingað til lands sinnir að
mestu norðursvæðinu og kallast Standing NATO Mine Countermeasures
Group ONE (SNMCMG 1)). Hinn flotinn er Group TWO og starfar sunnar.