Tundurskeyti eytt úti fyrir Sandgerði
Eitt öflugasta tundurskeyti sem komið hefur í veiðarfæri íslensks fiskiskips hin síðari ár.
17.12.2020 Kl: 15:47
Séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar, með aðstoð áhafnarinnar á varðskipinu Tý, eyddi sprengjuhleðslu úr þýsku tundurskeyti frá seinni heimsstyrjöld úti fyrir Sandgerði laust fyrir klukkan tvö í dag.
Tundurskeytið kom kom í veiðarfæri togara sem var að veiðum úti fyrir Garðskaga síðdegis í gær en rúmlega 300 kíló af virku dýnamíti voru í hleðslunni. Áhöfn togarans brást hárrétt við og gerði Landhelgisgæslunni viðvart sem sendi sprengjusérfræðinga um borð í skipið í Sandgerðishöfn í gær.
Tundurskeytið var híft frá togaranum og dregið hálfan
annan kílómetra frá höfninni þar sem því var sökkt á 10 metra dýpi. Í dag vann
séraðgerðasveitin og áhöfnin á Tý að undirbúningi eyðingarinnar sem var ansi
kraftmikil. Tilkomumikill strókur stóð 30 metra upp í loft eftir að skeytið var
sprengt. Þetta er eitt öflugasta tundurskeyti sem komið hefur í veiðarfæri
íslensks fiskiskips hin síðari ár. Aðgerðin gekk afar vel og ekki þarf að
fjölyrða um hættuna sem getur skapast af tundurskeyti sem þessu sem komið er
til ára sinna.
Hér má sjá þegar tundurskeytinu var eytt.
Tundurskeyti eytt úti fyrir Sandgerði
Talið er að um fremsta hluta þýsks tundurskeytis sé að ræða.
Flothylki komið utan um tundurskeytið í gærkvöldi.
Tundurskeytið híft frá borði.
Kafa þurfti að tundurskeytinu til að undirbúa eyðinguna.
Búnaðurinn sem þarf í aðgerð sem þessa.
Varðskipið Týr.
Unnið að undirbúning eyðingarinnar.
Myndarlegur strókur myndaðist þegar skeytinu var eytt.
Tundurskeytið var öflugt.
Sólarlagið við Sandgerði í dag.
Andri Rafn Helgason.
Garðar Rafn Nellett og Jónas Þorvaldsson að störfum.