Týr kominn á þurrt
Reglubundið viðhald fer fram á varðskipinu Tý í slippnum í Reykjavík.
11.2.2021 Kl: 16:30
Varðskipið Týr er nú komið á þurrt. Í vikunni var skipið tekið í slipp í Reykjavík þar sem fram fara viðgerðir á skrúfubúnaði og hitakerfi skipsins. Eflaust hafa einhverjir vegfarendur í miðborginni orðið varir við skipið sem stendur tignarlegt við Mýrargötu. Varðskipið Týr var smíðað í Árósum árið 1975 og ber aldurinn nokkuð vel.
Týr er kominn á þurrt í Reykjavík. Viðhaldsvinna stendur yfir.Varðskipið Týr var smíðað í Árósum árið 1975. Skipið ber aldurinn vel.