Umfangsmikil leit að skipi sem hvarf úr ferilvöktun

Landhelgisgæslan setti af stað umfangsmikla leit í gærkvöld, föstudag vegna fiskiskips sem hvarf úr ferilvöktunarkerfi.  

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafði fylgst með skipinu en um kl.19.30 hvarf fiskiskipið úr ferilvöktunarkerfi djúpt austur af landinu. Fjórir menn voru skráðir í áhöfn skipsins sem virtist vera á leið til Noregs. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar reyndi ítrekað að ná í skipið í gegnum fjarskipti og gervihnattasíma en án árangurs. Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF var því send austur til að leita að skipinu. Þá var varðskipið Týr sem statt er á austfjörðum sett í viðbragðsstöðu.

Um klukkan eitt í nótt fann áhöfn flugvélar Landhelgisgæslunnar skipið um 140 sjómílur austnorðaustur af Dalatanga. Skipið var þá á siglingu til Noregs að sögn skipstjóra og amaði ekkert að áhöfninni. Skipið virðist hins vegar ekki vera útbúið í samræmi við kröfur til skipa sem sigla yfir hafið og gat þess vegna ekki tilkynnt um ferðir sínar í samræmi við lög. Þá virtist skipið ekki mannað í samræmi við lög og reglugerðir. Í ljósi alvarleika málsins vísaði Landhelgisgæslan skipinu til Seyðisfjarðar þar sem mál þess verður rannsakað frekar. 

Landhelgisgæslan lítur þau mál  mjög alvarlegum augum þegar um möguleg brot á reglum um vöktun og öryggismál er að ræða.