Umfangsmikil mengunarvarnaræfing í Skutulsfirði

Varðskipið Þór og flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, tóku þátt.

  • 20180514_125251

Varðskipið Þór og flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, tóku þátt í umfangsmikilli mengunarvarnaræfingu í Skutulsfirði í vikunni. Æfingin var samstarfsverkefni Landhelgisgæslu Íslands, Umhverfisstofnunar, Samgöngustofu og Ísafjarðarhafnar.

Um árlega bráðamengunaræfingu var að ræða þar sem líkt var eftir olíuslysi í kjölfar þess að skip tók niðri á skeri í firðinum. Að þessu sinni var ekki notast við hina öflugu mengunarvarnargirðingu Þórs sem er 300 metra löng, heldur var mengunarvarnargirðingu Ísafjarðarhafnar komið fyrir um borð í varðskipinu og hún prófuð. Slíkar girðingar eru til staðar í nokkrum höfnum landsins. 

20180514_102517Dæla varðskipsins Þórs að störfum.

Dráttarbátur Ísafjarðarhafnar, Sturla, dró girðinguna út. Dæla varðskipsins Þórs, hinn svokallaði Skimmer, sá svo um að ná „mengaðri olíu úr sjó.“ Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, flaug yfir svæðið og lagði mat á „umfang mengunarinnar“.

20180514_100122Mengunarvarnargirðing Ísafjarðarhafnar var notuð að þessu sinni.

Æfingin gekk vel og voru allir hlutaðeigandi sammála um að nauðsynlegt sé að æfa viðbrögð við olíumengun með reglubundnum hætti. Að sama skapi þykir mikilvægt að prófa þann búnað sem er til staðar í höfnum landsins svo hægt sé að bregðast við með fumlausum hætti, verði olíuslys hér við land.