Varðskipið Þór komið með Akurey til Reykjavíkur

Siglingin tók tæpan sólarhring.

  • Img_2422
19.06.2018 Kl: 12:38

Varðskipið Þór er nú komið til Reykjavíkur með ísfisktogarann Akurey AK-10 sem varð vélarvana djúpt vestur af Vestfjörðum í gærmorgun. Þegar beiðni um aðstoð barst Landhelgisgæslunni, á sjöunda tímanum í gærmorgun, var Þór í tæplega 70 sjómílna fjarlægð en hann var þá staddur á Bíldudal. Um klukkan 13:00 var Þór kominn á vettvang og greiðlega gekk að koma taug á milli skipanna. Að því búnu hélt varðskipið áleiðis til Reykjavíkur með Akurey í togi en siglingin til Reykjavíkur heppnaðist vel og tók tæpan sólarhring. Þór kom með Akurey AK-10 að Engey á tólfta tímanum í dag en þá tóku dráttarbátar Reykjavíkurhafnar við og drógu skipið að bryggju.

Aðgerðir gengu afar vel enda hefur áhöfnin á Þór góða reynslu og þekkingu á verkefnum sem þessum. Eftir að Akurey var komin til hafnar í Reykjavík í dag hélt varðskipið Þór áfram til eftirlits- og löggæslustarfa.

Img_2428Þór kemur með Akurey AK-10 til Reykjavíkur. Ljósmynd: Jón Páll Ásgeirsson.