Varðskipið Þór sækir sjúkling um borð í norskt loðnuskip og þyrlan TF-GNA sækir slasaða göngumenn

  • Varðskipið Þór

Talsverður erill hefur verið hjá Landhelgisgæslunni í dag. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst um klukkan eitt beiðni frá Björgunarmiðstöðinni í Stavanger um aðstoð vegna hjartveiks skipverja um borð í norsku loðnuskipi sem statt var um 115 sjómílur austur af Norðfirði á leið á loðnumiðin. Varðskipið Þór var þá statt í um 58 sjómílna fjarlægð frá loðnuskipinu og hélt varðskipið rakleiðis á vettvang. Þór var kominn að skipinu rétt fyrir hálffjögur og fóru sjúkraflutningamenn úr áhöfn varðskipsins um borð til að aðgæta sjúklinginn. Tekið var hjartalínurit og ástand sjúklings metið og í framhaldi af því var í samráði við þyrlulækni Landhelgisgæslunnar afráðið að flytja sjúklinginn í land. Héldu þá bæði varðskipið Þór og norska loðnuskipið áleiðis til Neskaupstaðar.

Stuttu eftir að beiðnin barst frá Noregi var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna tveggja slasaðra göngumanna á Skarðsheiði. TF-GNA, þyrla Landhelgisgæslunnar hélt á vettvang og var fljótlega komin á slysstað. Aðstæður á slysstað voru erfiðar en greiðlega gekk fyrir áhöfn þyrlunnar að búa um hina slösuðu og flytja þá um borð í þyrluna. Haldið var rakleiðis til Reykjavíkur og lent rúmlega þrjú við Landspítala Háskólasjúkrahús með göngumennina.