Viðbúnaður vegna vélarvana flutningaskips

16. apríl, 2024

Flutningaskipið er við akkeri

16.4.2024 Kl: 6:50

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir á
vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út ásamt áhöfninni á
varðskipinu Freyju, laust fyrir klukkan þrjú í nótt, vegna erlends
flutningaskips sem varð vélarvana um fjórar sjómílur út af Rifstanga. Þá var
íslenskt togskip sem var í nágrenninu einnig beðið um að halda á staðinn. 

Flutningaskipið rak í átt að landi en áhöfn þess lét akkeri skipsins falla og
tókst að stöðva rekið. Skipið er nú um þrjár sjómílur frá landi og akkeri þess
halda. Vindur er hægur á staðnum og ölduhæð um tveir metrar. Þegar mesta hættan
var liðin hjá voru sjóbjörgunarsveitir Landsbjargar afturkallaðar ásamt
togskipinu sem var til taks á staðnum.

Gert er ráð fyrir að varðskipið Freyja
verði komið á staðinn eftir hádegi. Þá verður tekin ákvörðun með útgerð
skipsins með hvaða hætti það verði dregið af staðnum. 

Þá er þyrlusveit
Landhelgisgæslunnar í viðbragðsstöðu á Akureyri ef á þarf að halda.