
25.9.2020 Kl: 14:33
Árið hefur verið viðburðaríkt
fyrir varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands.
Þrátt fyrir farsóttina hefur tekist að halda flestum forgangsverkefnum á
sviði öryggis- og varnarmála gangandi og uppfylla þjóðréttarlegar
skuldbindingar Íslands þegar kemur að öryggis- og varnarsamstarfinu. 

Á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli eru að jafnaði 100 – 300 liðsmenn
aðildarþjóða Atlantshafsbandalagsins og verktakar sem dvelja tímabundið á svæðinu og á viðurkenndum
hótelum á Suðurnesjum. Það er flókið og ábyrgðarmikið verkefni að tryggja heilsu
og öryggi liðsmanna aðildarþjóða bandalagsins á þessum tímum, verkefni sem starfsmenn
hafa unnið í nánu daglegu samstarfi við starfsfólk Landlæknisembættisins,
landamæraeftirlit Lögreglustjórans á Suðurnesjum og Isavia.
Á sama tíma hafa verið til
framkvæmdar stór sem smá viðhaldsverkefni á öryggissvæðunum.  Á Stokksnesi standa yfir umfangsmiklar
viðhaldsframkvæmdir á stöðvarhúsinu sem árlega verður fyrir miklum ágangi
sjávar.  Auk þess sem í gangi er
átaksverkefni í hreinsa upp olíumengun fyrri tíma á svæðinu. 
 Á Bolafjalli er unnið að því að
Á Bolafjalli er unnið að því að
gera svæðið öruggara og aðgengilegra fyrir ferðamenn sem vilja sjá útsýnið af
Bolafjalli í samvinnu við Bolungarvíkurkaupstað.

Viðamiklum uppfærslum og
endurbótum á ratsjáreftirlitskerfunum á Miðnesheiði, Bolafjalli,
Gunnólfsvíkurfjalli og Stokksnesi lauk í ágúst. Framkvæmdir voru að mestu kostaðar
af mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins.
Framkvæmdin var unnin af sérfræðingum Landhelgisgæslunnar, NATO og
Lockheed Martin, framleiðanda búnaðarins.   
Á öryggissvæðinu á
Keflavíkurflugvelli eru til framkvæmdar umfangsmikil, löngu tímabær viðhalds og
endurbótaverkefni. 
Helstu framkvæmdir eru:
Endurbætur á æfingaaðstöðu
Ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar.
Hönnun og undirbúningi er lokið og er ráðgert að framkvæmdir hefjist á
næstu vikum.  Verklok við þennan áfanga
eru áætluð vorið 2020. 

Bygging gistiskála fyrir erlendan
liðsafla. Útboði lauk í september og ættu framkvæmdir að geta hafist í lok
október.  Um er að ræða gistiskála sem
rúmar 50 til 100 liðsmenn.  Verklok eru
áætluð haustið 2021.
Viðhald á þotuskýlum hefur verið
í undirbúningi og munu framkvæmdir hefjast í haust og standa yfir til ársloka
2022.  

Umfangsmiklar endurbætur standa
yfir á flugskýli 831 á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.  Annars vegar er um að ræða verkefni sem er í
umsjón bandaríska sjóhersins og kostað af Bandaríkjamönnum. Tilgangur verkefnisins
er að bæta aðstöðuna hér á landi fyrir nýju kafbátaeftirlitsflugvélarnar,
P-8.  Helstu verkþættir eru breytingar á
hurð, eldvarnakerfum og rafkerfum.
Verklok eru áætluð vorið 2021. 
Hins vegar eru verkefni sem
kostuð eru af íslenska ríkinu og mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins.  Helstu verkþættir eru klæðningar utanhúss,
málning innan- og utanhúss ásamt fjölmörgum öðrum viðhaldsverkefnum.  Verklok eru áætluð haustið 2021. 
Flugskýlið er notað af
Landhelgisgæslu Íslands, bandaríkjaher og aðildarþjóðum Atlantshafsbandalagsins
en þyrla danska flughersins er væntanleg þangað í viðhaldsskoðun. 

Bygging þvottastöðvar fyrir
flugvélar. Verkefnið er í umsjón og kostað af bandaríska sjóhernum.  Verklok eru áætluð vorið 2021. 
 Endurbætur á
Endurbætur á
akstursbrautum flugvéla, flughlöðum og ljósakerfum á öryggissvæðinu innan
Keflavíkurflugvallar. Endurbætur eru að hluta til að mæta kröfum um aukna
umhverfisvernd.  Verkefnið er kostað af
bandaríska flughernum og eru framkvæmdir á vegum verkfræðideildar bandaríska sjóhersins.  Verklok verða vorið 2021. 

Í september var gerður samningur
við ÍAV um stækkun á flugvélastæðum á öryggissvæðinu innan
Keflavíkurflugvallar, byggingu á nýju flugvélastæði fyrir hættulegan farm og
undirstöðum fyrir færanlega gistiaðstöðu.
Verkefnið er kostað af bandaríska flughernum og eru framkvæmdir á vegum
verkfræðideildar bandaríska sjóhersins.  
Í samvinnu við Isavia er verið að
undirbúa viðhald á akstursbrautum og flughlöðum á Keflavíkurflugvelli,
framkvæmdir sem kostaðar verða af Mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins. 
Í vinnslu er áætlun um uppgræðslu
á svæðinu með trjám og öðrum gróðri.  Við
þá framkvæmd mun ásýnd svæðisins breytast. 
Átak hefur verið í gangi við að ganga frá til geymslu hjá
Þjóðskjalasafni, skjalasöfnum varnarliðsins, bygginganefndar flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar, Ratsjárstofnunar, Varnarmálastofnunar og Landhelgisgæslu Íslands.
Verkefnið hefur verið unnið með stuðningi frá Vinnumálastofnun.