Áhöfnin á TF-SIF kölluð út vegna neyðarsendis

Reyndist vera af flutningaskipi sem var á siglingu í nágrenninu

  • Droppaefing-a-Hunafloa-10-

30.12.2023 Kl: 11:53

Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, var kölluð út í gærkvöldi eftir að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning í gegnum gervitungl um að neyðarsendir væri virkur djúpt suður af Reykjanesi. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var sömuleiðis höfð í viðbragðsstöðu á Reykjavíkurflugvelli.

Við athugun varðstjóra í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kom í ljós að staðsetning neyðarsendisins væri í nágrenni við maltneska flutningaskipið Ludogerets sem var á siglingu um 114 sjómílum suðvestur af Reykjanesi. Um borð í Ludogerets sagðist áhöfnin ekki sakna neins búnaðar eða mannskaps og allt væri í himnalagi um borð.

Þegar flugvél Landhelgisgæslunnar kom á svæðið heyrðist greinilega í sendinum, baujan sem sendi neyðarmerkið í gegnum gervitunglið sást greinilega og stuttu seinna sást ljósmerki frá neyðarsendinum. Ekkert annað sást á floti í nágrenninu.

Eftir samskipti stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar og samhæfingarstöðvarinnar í Portúgal kom í ljós að umræddur neyðarsendir var skráður á flutningaskip sem áður hét Macaran en bæri nú nafnið Ludogerets. Í ljósi þessara upplýsinga var talið óhætt að kalla TF-SIF aftur til Reykjavíkur. Búnaður og þjálfun áhafnar hennar reyndist sérlega vel í útkallinu og sem betur fer reyndist enginn vera í hættu.

Flugferill-TF-SIFJARFlugferill TF-SIFJAR.