Endurbætur í björgunarrými Þórs

Drónum fundinn staður.

  • Droni-6

18.12.2023 Kl: 14:13

Undanfarið hefur verið unnið að endurbótum á björgunarrými varðskipsins Þórs. Aðstaðan hefur verið aðlöguð að nútímanum og eftir breytingarnar er vinnuaðstaða til fyrirmyndar.

Áhöfn skipsins hefur annast endurbæturnar. Starfsfólki er umhugað um þau tæki og tól sem þar eru til umráða og á meðfylgjandi myndum má glögglega sjá að allt er gert til að þau verði ekki fyrir hnjaski. Við endurbæturnar var þess sérstaklega gætt að þessi mikilvægi búnaður yrði eins aðgengilegur og kostur er og vel færi um hann.

Ljósmyndir: Sævar Már Magnússon

Droni-4Dróninn á sínum stað.

Droni-6Gísli Freyr Njálsson, háseti, mundar drónann.

Droni-1Aðstaða drónans er vel merkt.

Droni-5Þess er gætt að þessi mikilvægi búnaður verði ekki fyrir hnjaski.