Jól um borð í Þór

Jólaandinn sveif yfir vötnum.

  • D

22.12.2023 Kl: 14:03

Jólaandinn sveif yfir vötnum um borð í varðskipinu Þór í desember þrátt fyrir að áhöfnin hefði í nógu að snúast. Þess var gætt að allir kæmust í hátíðaskap og venju samkvæmt var árlegt jólabingó um borð, glæsilegt jólahlaðborð og að sjálfsögðu kom óvæntur gestur í heimsókn til að gera stundina sem jólalegasta.

PStundin var hátíðleg. 

DÓvæntur gestur kom í heimsókn. 

FGaman saman.