Bátur tekinn við meintar ólöglegar veiðar

Mánudagur 26. janúar 2009

Í gær stóð varðskip Landhelgisgæslunnar línubát að meintum ólöglegum veiðum inni á skyndilokunarsvæði út af Vatnsleysuströnd. Um er að ræða skyndilokun nr. 8 sem auglýst var 21. janúar sl. eftir að Hafrannsóknastofnun hafði fengið upplýsingar um of hátt hlutfall smáfisks í afla báta á svæðinu. 

Varðskipsmenn vísuðu bátnum til hafnar þar sem lögreglan af höfuðborgarsvæðinu tók á móti skipstjóranum og yfirheyrði hann.  Lögreglan mun síðan taka ákvörðun um hvort ákært verður í málinu.

26.01.2009/HBS