Þyrla kölluð út vegna bílslyss í Húnavatnssýslu

  • TF-LIF-140604

Fimmtudagur 5. nóvember 2009

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 18:58 beiðni frá Neyðarlínunni um þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna alvarlegs bílslyss í Langadal í Húnavatnssýslu.

Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið kl. 19:16 og lenti á slysstað kl. 20:10. Tveir slasaðir voru fluttir yfir í þyrluna sem fór að nýju í loftið kl. 20:30 og áætlar að lenda við Borgarspítalann kl. 21:20.