Ný lög um Landhelgisgæslu Íslands samþykkt á Alþingi
Laugardagur 3. júní 2006
Lög um Landhelgisgæslu Íslands voru samþykkt á Alþingi í dag. Ferill þingmálsins er birtur á vef Alþingis en lögin hafa ekki verið birt þar enn.
Sjá feril málsins á slóðinni:
http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=132&mnr=694
Lögin öðlast gildi 1. júlí næstkomandi en í greinargerð með frumvarpinu segir:
Lagt er til að lögin taki gildi 1. júlí 2006 en þann dag á Landhelgisgæsla Íslands 80 ára afmæli. Íslenska ríkið tók við rekstri björgunarskipsins Þórs 1. júlí 1926 af Björgunarfélagi Vestmannaeyja og hefur sá dagur verið valinn stofndagur Landhelgisgæslu Íslands.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.