Línu- og handfærabát vísað til hafnar

Þriðjudagur 15. júní 2010

Línu- og handfærabáturinn, Eyjólfur Ólafsson GK-38 sem leitað var að í kvöld fannst kl. 21:45 um 40 sjómílur SV af Reykjanesi eða á svipuðum slóðum og þegar síðast heyrðist til hans um hádegið. Var nærstaddur bátur fyrstur til að ná sambandi við bátinn en varðstjórar Landhelgisgæslunnar höfðu ítrekað reynt að ná sambandi við hann en ekki bar það árangur. Var því þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út um kl. 20:30 í kvöld auk þess sem varðskipið Týr, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum og nærstaddur bátar voru beðnir um að hefja leit.

Var bátnum vísað til hafnar þar sem hann gerðist brotlegur við fiskveiðilöggjöfina með því að vera fyrir utan langdrægi fjareftirlitsbúnaðar. Einnig gerðist hann brotlegur við siglingalög og reglugerð um tilkynningaskyldu. Lögreglan mun taka á móti bátnum er hann kemur til hafnar í Sandgerði kl. 08:00 í fyrramálið.

Eyjólfur Ólafsson GK-38 er 7,7 brúttótonn að þyngd og 9 m langur.