Björgunarhylki í Chile smíðað af ASMAR sem annast smíði varðskipsins Þórs

  • Sjosetn22

Mánudagur 11. október

Björgunarhylki sem notað verður við björgun námamannanna 33 í Chile næstkomandi miðvikudag er smíðaður af ASMAR, skipasmíðastöð sjóhersins í Chile en þar hefur Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar verið í smíðum sl. þrjú ár eða frá 16. október 2007. Áætlað er að afhenda varðskipið þann 31. ágúst 2011.

Vinna björgunarmenn í Chile nú að því að fóðra göngin og verður að því loknu björgunarhylkið sett upp og í framhaldinu gengið úr skugga um að göngin séu orðin örugg. Vonir standa til að mennirnir verði hífðir upp á miðvikudag. Talið er að um 90 mínútur taki að hífa hvern mann og gæti því aðgerðin tekið tvo sólarhringa.

11102010_Bjorghylki3

Teikning sem unnin var af ASMAR skipasmíðastöðinni.
Teikningin sýnir módel af hylkinu sem er úr stáli, 2,5 metrar að hæð og 250 kg. að þyngd. Hylkið er með fjarskiptasamband við námuna og yfirborðssvæðið. Er hylkið einnig búið neyðarútgöngukerfi.


11102010_Bjorghylki1


11102010_Bjorghylki4

Carolina Lobos, dóttir eins af námamönnunum 33 prófaði á laugardag björgunarhylkið sem hannað er af skipasmíðastöð sjóhersins í Chile.
Mynd

Mynd frá sjósetningu Þórs, í ASMAR skipasmíðastöð sjóhersins í Chile þann 29. apríl 2009. ASMAR.

Hylki; http://dailycaller.com/2010/09/14/chiles-trapped-miners-have-a-thousand-job-offers/#ixzz123OtNHgi

Nánar um smíði varðskipsins Þórs hér.