Fagnaðarfundir við komu Ægis í gærkvöldi

  • Aegir_Midjjaf15102010

Fimmtudagur 28. október 2010

Varðskipið Ægir kom til Reykjavíkur kl. 19:00 í gærkvöldi eftir rúmlega sex mánaða fjarveru og lengstu ferð sem frá upphafi hefur verið farin með íslensku varðskipi. Á síðastliðnum sex mánuðum hefur Ægir siglt samtals 19.500 sjómílur, sem eru rúmlega 36 þúsund kílómetrar sem er nánast hringferð umhverfis jörðina en vegalengdin um miðbaug er 21.600 sml.

Ægir lagði úr Reykjavíkurhöfn þann 20. apríl sl. áleiðis til Senegal en varðskipið hefur frá byrjun maí sinnt verkefnum fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins. Var Ægir fyrst staðsettur við strendur Senegal en í júlí sigldi varðskipið til Almería á Spáni og hefur frá þeim tíma sinnt eftirliti á Miðjarðarhafi.

Á tímabilinu hefur Ægir reglulega komið til hafnar og skipt hefur verið um áhafnir. Þó eru nokkrir áhafnarmeðlimir sem völdu að sigla allt tímabilið og voru því innilegir fagnaðarfundir á Faxagarði í gærkvöld.

Myndina tók Guðmundur St. Valdimarsson við Spán þegar skipið var við það að hefja siglinguna til Íslands.