Vélarvana bát komið til aðstoðar
Mánudagur 28. mars 2011
Landhelgisgæslunni barst kl. 12:09 aðstoðarbeiðni frá skemmtibát, með tvo menn í áhöfn, sem var vélarvana norðan við hafnargarðinn í Vogum þar sem miklar grynningar eru. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF GNA var kölluð út auk þess sem björgunarskip og bátar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á svæðinu, sem og nærstaddir bátar voru beðnir um að fara til aðstoðar.
Tilkynning barst kl. 12:44 um að fiskibáturinn Hnoss væri kominn með bátinn í tog og sigldi með hann til Voga. Einnig var Jón-Oddgeir, björgunarbátur Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á staðnum. Skömmu síðar var þyrla Landhelgisgæslunnar komin á staðinn en hélt fljótlega af svæðinu þar sem ekki var talin þörf á frekari aðstoð.