Æfingar þyrluáhafna með slökkvifötu
Miðvikudagur 15. júní 2011
Nú standa yfir reglulegar æfingar þyrluáhafna Landhelgisgæslunnar með slökkvifötubúnaði (bambi bucket) sem hengdur er neðan í þyrluna TF-LÍF. M.a. fóru fram æfingar við Skorradalsvatn sl. föstudag og í gær við Kleifarvatn. Einnig var nýlega æfing með Brunavörnum Suðurnesja þar sem slökkt var í æfingahúsnæði slökkviliðsmanna.
Hafa æfingar gengið vel en búnaðurinn er m.a. ætlaður til að ráða niðurlögum elda á svæðum sem farartæki slökkviliðsins geta ekki af einhverjum ástæðum nálgast, má þar nefna sumarbústaðasvæði og sinuelda.
Slökkvifatan var keypt í kjölfar Mýraeldanna vorið 2006. Er fatan hengd neðan í þyrluna, henni dýft í vatn eða sjó og þannig fyllt. Fatan er síðan tæmd með því að rafknúinn loki í botni hennar er opnaður og vatnið gusast út. Hámarksburðargeta skjólunnar er um 2100 lítrar en hægt er að minnka og auka vatnsmagnið í fjórum þrepum frá tæplega 1500 lítrum upp í fyrrnefnda 2100 lítra.
Myndir úr safni LHG, frá æfingu með slökkviliði Borgarbyggðar.