Þór kannar frystigám sem fauk
Mánudagur 7. nóvember 2011
Landhelgisgæslunni barst kl. 12:53 á sunnudag tilkynning um 40 feta frystigám sem fauk af bryggjunni á Stöðvarfirði og rak yfir fjörðinn í hvassviðrinu sem gekk yfir á laugardag. Var óskað eftir að Landhelgisgæslan færi til að kanna málið. Varðskipið Þór var þá skammt undan og hélt strax á staðinn.
Frystigámurinn reyndist þá vera kominn uppí fjöru og hafði orðið fyrir talsverðum skemmdum. Ekki var tilefni til frekari aðgerða af hálfu Landhelgisgæslunnar, né björgunarsveita heldur var málið lagt í hendur eiganda gámsins.
Myndirnar voru teknar af áhöfn Þórs þegar farið var á harðbotna bát Þórs að skoða frystigáminn.
Myndir v/s ÞÓR