Togvíraklippunum fyrst beitt fyrir 40 árum síðan - merk tímamót í sögu landhelginnar

  • Klippurnar2

Miðvikudagur 5. september 2012

Í dag eru 40 ár liðin síðan hinum þekktu togvíraklippum var fyrst beitt en þær voru helsta vopn Landhelgisgæslunnar í þorskastríðunum árin 1972 og 1975. Var þar á ferð varðskipið Ægir með Guðmund Kjærnested skipherra í brúnni, norður af Horni.  Hófust þar með aðgerðir Landhelgisgæslunnar gegn ómerktum togurum sem voru að veiðum innan 50 sjómílna fiskveiðimarkanna. Varðskipið veitti óþekkjanlegum togara aðvörun sem hann sinnti ekki heldur lék af plötu „Rule Britannia" (smellið til að hlusta) um hátalarakerfi skipsins. Var togarinn þá að veiðum 22 sjómílur fyrir innan 50 mílna mörkin.

Klippti Ægir þá á annan togvírinn í vörpu togarans en nærliggjandi togarar komu á vettvang. Meðan á þessum aðgerðum Ægis stóð, reyndu togararnir án árangurs að koma flotkaðli í skrúfu varðskipsins. Köstuðu þá skipverjar togarans brunaexi yfir í varðskipið og fylgdu á eftir kolamolar og járnboltar,  með ókvæðisorðum þeirra.

Nánar um togvíraklippurnar hér.

Var m.a. fjallað um aðgerðina í fjölmiðlum 6. september 1972, sjá tímarit.is