Varðskipið Þór vinnur að slökkvistörfum á vettvangi

Miðvikudagur 30. október 2013 kl. 21:50

Varðskipið Þór kom að flutningaskipinu Fernanda klukkan 21:15 í kvöld þar sem það er staðsett suður af Surtsey. Ennþá logar vel í skipinu og er mikill hiti til staðar.

Landhelgisgæslan mat aðstæður á staðnum í samráði við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og mun varðskipið nota slökkvibyssur við að kæla skipið að utanverðu næstu klukkustundirnar og er Lóðsinn frá Vestmannaeyjum ennþá á staðnum. Ákvörðun verður tekin í fyrramálið með áframhaldandi björgunaraðgerðir.


Mynd SAS

Myndir frá æfingu varðskipsins Þórs með slökkvibyssur sem notaðar verða í á vettvangi.
Ljósmyndari Óskar Á. Skúlason