Leitað að neyðarsendi suður af Reykjanesskaganum
Föstudagur 28. október 2005.
Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar, fór í loftið kl. 13:50 til að reyna að finna neyðarsendi sem hefur sent neyðarskeyti um gervihnött frá því í morgun. Björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Oddur V. Gíslason, hefur einnig verið sendur til leitar. Svo virðist sem neyðarsendirinn sé staðsettur suður af Reykjanesskaganum. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar/vaktstöð siglinga hefur haft samband við skip og báta á svæðinu en enn er ekki vitað hvaðan neyðarskeytin koma.
Flugvélar í aðflugi til Keflavíkur hafa flogið yfir svæðið og hafa ekki orðið varar við neyðarsendingarnar. Björgunarsveit Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í Grindavík hefur einnig reynt að miða út neyðarsendingarnar úr bifreiðum í landi.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.