Norsk loðnuskip komin á miðin

  • lodna_jpg_640x800_sharpen_q95

Þriðjudagur 20. janúar 2015

Fyrsta norska loðnuskipið á þessari vertíð kom inn í íslenska efnahagslögsögu síðastliðinn laugardag og eru nú tvö skip komin á miðin fyrir norð-austan land. Erlend loðnuskip hafa tilkynningaskyldu gagnvart Landhelgisgæslunni meðan þau eru innan hafsvæðisins, tilkynna þegar þau koma inn og sigla út úr íslenskri efnahagslögsögu, þau þurfa að vera í ferilvöktun og senda aflatilkynningar. Grænlensk loðnuskip eru einnig við veiðar en engin færeysk loðnuskip eru komin á miðin.

Skv. reglugerð nr. 926/2014, um loðnuveiðar norskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands eru loðnuveiðar norskra skipa heimilar til 15. febrúar. Þeim er heimilt að veiða samtals 40.182 lestir í fiskveiðilandhelgi Íslands og geta 25 skip verið að veiðum í einu. Norskum skipum er aðeins heimilt að stunda loðnuveiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands norðan við 64°30´N.

Landhelgisgæslan fylgist með veiðum skipanna sem lýkur þegar þau ná kvóta, loðnan færist sunnan við 64°30´N eða komið er framyfir 15. febrúar.