Varðskipið Þór við eftirlit á úthafskarfamiðum

Varðskipið Þór er nú statt við eftirlit á úthafskarfamiðunum við 200 sjómílna mörk efnahagslögsögunnar á Reykjaneshrygg.  Samkvæmt samningi Norður-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) máttu veiðarnar hefjast á miðnætti aðfaranótt sunnudagsins 10. maí. 

Á svæðinu eru nú 27 veiðiskip, þar af 3 íslensk. Auk varðskipsins Þórs er á svæðinu spænskt varðskip á vegum Evrópusambandsins. Varðskipsmenn af Þór fóru í eftirlit um borð í erlent veiðiskip í gær á fyrsta degi veiðanna. Á svæðinu er nú norðaustan stinningskaldi og leiðindasjólag.

Varðskipið Þór verður við eftirlit á svæðinu á næstunni.