Hressir krakkar heimsækja varðskipið Ægi
Varðskipið Ægir fékk skemmtilega heimsókn á dögunum er hópur af hressum krökkum sem sækja sumarnámskeið á Sauðárkróki kíkti um borð. Varðskipið Ægir er sem stendur við bryggju á Sauðárkróki og er unnið við margvísleg viðhaldsstörf um borð. Tóku skipverjar á Ægi vel á móti krökkunum, sýndu þeim skipið vítt og breitt og sögðu þeim frá því helsta sem á daga þess hefur drifið. Hér má sjá mynd sem Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður tók af glaðbeittum hópnum að lokinni fróðlegri heimsókn.
|
Krakkarnir voru eldhressir og afar fróðleiksfúsir |
|
Varðskipið Ægir ber aldurinn vel |