Flutningaskipinu Sunny Jane vísað frá höfn í Hollandi og neitað um þjónustu
Þriðjudagur 7. júní 2005.
Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Landhelgisgæslan undanfarið verið með eftirlit á fiskveiðistjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) á Reykjaneshrygg en þar hafa m.a. sjóræningjaskip verið að veiðum.
Ísland er aðili að Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndinni ásamt Evrópusambandslöndunum, Noregi, Færeyjum, Grænlandi, Rússlandi, Eistlandi og Póllandi. Þau skip sem veiða án leyfis og kvóta á svæðinu eru kölluð sjóræningjaskip.
Þann 27. maí tók áhöfn flugvélar Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, mynd af flutningaskipinu Sunny Jane taka við fiski frá togaranum Okhotino sem skráður er í Dominika. Landhelgisgæslan tilkynnti stjórn NEAFC um þetta þar sem Okhotino hefur ekki leyfi til veiða á svæðinu.
Sunny Jane kom til hafnar í Emshaven í Hollandi 2. júní sl. og sætti rannsókn hollenskra yfirvalda. Skipinu var meinað að landa aflanum og fékk enga þjónustu í Hollandi en það er í samræmi við reglur NEAFC sem hafa verið lögfestar í aðildarríkjunum. Sjá um þetta 3. gr. laga nr. 22/1998 um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á slóðinni:
http://www.althingi.is/lagas/nuna/1998022.html
Aðildarríki NEAFC halda áfram að fylgjast með ferðum skipsins. Við rannsókn hollenskra yfirvalda um borð í Sunny Jane kom í ljós að flutningaskipið hafði tekið við afla frá skipunum Orlik, Olchano, Ostor, Oyra og Olchan. Tvö síðastnefndu skipin eru á svarta lista NEAFC, B-listanum, sem sjóræningjaskip. Auk þess hafði Landhelgisgæslan staðið skipið Okhotino að því að umskipa afla yfir í Sunny Jane eins og áður segir.
Sjá heimasíðu NEAFC á slóðinni:
http://neafc.org/
Þar sést að Sunny Jane er komin á svartan lista NEAFC, svokallaðan A-lista (undir dálkinum MEASURES).
upplýsingaftr.