Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri kveður starfsfólkið
Fimmtudagur 30. desember 2004.
Síðasti vinnudagur Hafsteins Hafsteinssonar forstjóra er á morgun, gamlársdag. Þar sem margir verða í fríi á morgun kom starfsfólkið í höfuðstöðvunum á Seljavegi, varðskýli og á flugvelli til að kveðja Hafstein. Áður hafði Hafsteinn farið um borð í varðskipin og kvatt áhafnir þeirra.
Meðfylgjandi myndir tók Árni Vésteinsson deildarstjóri í dag er Hafsteinn flutti stutta kveðjuræðu.