Georg Kr. Lárusson skipaður forstjóri Landhelgisgæslunnar
Miðvikudagur 22. desember 2004.
Dómsmálaráðuneytið gaf síðdegis í dag út svohljóðandi fréttatilkynningu:
Dómsmálaráðherra hefur í dag skipað Georg Kr. Lárusson, forstjóra Útlendingastofnunar, í embætti forstjóra Landhelgisgæslu Íslands frá og með 1. janúar nk.