Rússnesk herskip norðaustur af landinu

Laugardagur 9. október 2004.

Í gæsluflugi Landhelgisgæslunnar í dag var komið að sjö rússneskum herskipum sem lágu fyrir akkeri 8-15 sjómílur utan við 12 sjómílna landhelgismörkin norðaustur af Raufarhöfn.  Skipin hafa verið á æfingu austur og norðaustur af Íslandi undanfarna daga. Áhöfn TF-SYN, flugvélar Landhelgisgæslunnar, varð fyrst vör við skipin 29. september.  Landhelgisgæslan hefur ekki fengið tilkynningar um heræfingar frá rússneskum yfirvöldum.

Um er að ræða eftirtalin skip:  Flugmóðurskipið Admiral Kuznetsov (síðunúmer 063) en það er 58 þúsund tonn og 304 metra langt, beitiskipið Pyotr Velikiy (síðunúmer 099) en það er 24.300 tonn að stærð og 252 metra langt, Marshal Ustinov (síðunúmer 055) en það er 11.500 tonn að stærð og 186 metra langt, Besstrashny (síðunúmer 434) en það er 7.900 tonn og 156 metra langt og birgðaskipið Segey Osipov en það er 23.400 tonn og 162 metra langt.  Auk framangreindra skipa eru tvö björgunar- og dráttarskip á svæðinu. Annað þeirra heitir Altay og er 4000 tonn og 93 metra langt.  Hitt skipið er merkt einkennisstöfunum SB-406 en það er 300 tonn og 69 metrar að lengd.

Flugmóðurskipið og birgðaskipið voru tengd saman með olíuslöngu þegar sást til þeirra og voru þau að öllum líkindum að umskipa olíu.  Á myndum af skipunum sést stór olíuflekkur aftan úr þeim.  Öll skipin tilheyra rússneska  sjóhernum.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.