Einn maður komst af er kanadísk skúta sökk í gær
Þriðjudagur 31. ágúst 2004.
Einn maður komst af er kanadísk skúta sökk í gær. Félagi hans var látinn er TF-LIF kom á svæðið. Mennirnir voru á leið frá Kanada og var ferðinni heitið til Noregs. Þeir höfðu verið í þrjár vikur á siglingu er slysið átti sér stað. Þeir höfðu ætlað að dvelja í viku á Íslandi áður en þeir héldu af stað til Noregs.
Vel gekk að hífa mennina um borð í TF-LIF. Í áhöfn TF-LIF voru Jakob Ólafsson flugstjóri, Björn Brekkan flugmaður, Einar Valsson stýrimaður, Auðunn F. Kristinsson stýrimaður, Reynir G. Brynjarsson flugvirki/spilmaður og Jón Magnús Kristjánsson læknir. Auðunn var sigmaður í þessari ferð.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.
Mynd frá björgunarstjórnstöðinni í Halifax: Kanadíska skútan Silver á siglingu.
Mynd Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður: Skipbrotsmaðurinn ásamt Einari Valssyni stýrimanni við komuna til Reykjavíkur í gær.