Samstarf við Landmælingar Íslands - endurmæling á grunnstöðvaneti
Föstudagur 20. ágúst 2004.
Í ágústmánuði hafa Landmælingar Íslands í samvinnu við aðrar ríkisstofnanir staðið fyrir endurmælingu grunnstöðvanetsins. Markmiðið er að útvega fullgilda og áreiðanlega undirstöðu fyrir allar mælingar hvort sem er á vegum hins opinbera eða einkaaðila eins og fram kemur á heimasíðu Landmælinga Íslands. Vegna flekareks Evrópu- og Ameríkuflekanna og jarðskorpuhreyfinga er nauðsynlegt að endurmæla með reglulegu millibili.
Landhelgisgæslan tók þátt í verkefninu með því að flytja mælingamenn með þyrlu á afskekkta staði á Vestfjörðum. Einnig tók starfsmaður sjómælingadeildar, Hjördís Linda Jónsdóttir, þátt í mælingunum frá 3.-14. ágúst og hafði til afnota bifreið sjómælingadeildar (Sjómælinga Íslands). Hjördís fór m.a. til Grímseyjar, í Jökulheima, Vestmannaeyjar og Flatey. Að hennar sögn var þetta afskaplega spennandi og lærdómsríkt verkefni og verður gaman að sjá niðurstöður mælinganna þegar þær verða birtar.
Á meðfylgjandi myndum má sjá Hjördísi Lindu við sjómælingabílinn í Jökulheimum og sést Vatnajökull í baksýn. Einnig er mynd af mælingamönnum að stilla upp tækjum sínum á Hornströndum en áhöfn TF-SYN flutti þá þangað. Heyrst hefur að áhöfnin hafi komið berjablá úr leiðangrinum enda var krökkt af berjum á svæðinu.
fjölmiðlaftr.