Kona lést eftir bílveltu við Valdalæk í Vestur-Húnavatnssýslu. Samferðarkona hennar flutt alvarlega slösuð á sjúkrahús í Reykjavík
Miðvikudagur 21. júlí 2004.
Kona lést og önnur slasaðist alvarlega eftir bílveltu við Valdalæk í Vestur-Húnavatnssýslu um tíuleytið í gærkvöldi.
Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 22:02 og lét vita af bílslysi við Valdalæk á Vatnsnesi við Húnafjörð. Ekki var vitað hversu alvarlegt slysið væri en lögregla og læknir voru á leiðinni á staðinn. Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út. Skömmu síðar var tilkynnt að þrír farþegar væru alvarlega slasaðir.
TF-LIF fór í loftið frá Reykjavíkurflugvelli kl. 22:29 og lenti á slysstað kl. 23:16. Þá var ein kona látin. Slösuð samferðarkona hennar var flutt á Landspítala Háskólasjúkrahús í Reykjavík og lenti þyrlan þar kl. 00:21 eftir miðnætti í nótt.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.