Súrálsflutningaskipið Kiran Pacific strandaði 3.3 sjómílur norðvestur af Straumsvíkurhöfn

Sunnudagur 27. júní 2004.

 

Tyrkneska súrálsflutningaskipið Kiran Pacific strandaði á skeri 3.3 sjómílur (6 km.) norðvestur af Straumsvíkurhöfn í gærkvöldi.  Alls er 21 maður um borð í skipinu, allir frá Tyrklandi. Skipið er talið nokkuð stöðugt á skerinu og því ekki óttast um að áhöfnin sé í hættu.  Varðskip kom  á vettvang í morgun og er áhöfn þess að kanna aðstæður og ástand skipsins.

Kiran Pacific var að koma frá Bandaríkjunum með 45 þúsund tonn af súráli sem flytja átti til Straumsvíkur.  Í skipinu eru 456 rúmmetrar af svartolíu, 52 rúmmetrar af dísilolíu og 31 rúmmeter af smurolíu.  Skipið er 21968 brúttótonn og 193 metrar að lengd.  Talið er að 3 göt séu á sjótönkum framarlega í skipinu.  Ekki er vitað um göt á olíutönkum og ekki hefur orðið vart við mengun. 

Skipið strandaði kl. 18 í gær og barst tilkynning frá Hafnarfjarðarhöfn um það til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar kl. 21.  Von er á fulltrúum frá útgerð skipsins, tryggingafélags þess og hollensks björgunarfyrirtækis seinna í dag.  Fulltrúar Landhelgisgæslunnar, Siglingastofnunar og Umhverfisstofnunar fylgjast grannt með framvindu mála og taka sameiginlega ákvörðun um aðgerðir.

 

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.