Varðskip á heimleið með Polarsyssel í drætti

Miðvikudagur 9. apríl 2003. 
 
Varðskip er nú  á heimleið með norska selveiðiskipið Polarsyssel í drætti
 
Er varðskipið kom á staðinn um kl. 14:30 hafði norska selveiðiskipinu Polarfangst tekist að draga Polarsyssel út úr ísnum.  Þá var hafist handa við að koma dælum frá varðskipinu um borð í Polarsyssel en Polarfangst tók olíu úr Polarsyssel og hélt strax af stað til veiða.   
 
Um kl. 16 hafði varðskipsmönnum tekist að koma dælum um borð í Polarsyssel og höfðu þær vel undan lekanum.  Stuttu síðar var línu skotið yfir í Polarsyssel og var haldið af stað heim á leið kl. 16:30.    
 
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi 
Landhelgisgæslu Íslands