Málfundir um öryggismál sjómanna
Föstudagur 28. mars 2003.
Málfundir um öryggismál sjómanna verða haldnir víða um land á árinu. Sjómenn, útgerðarmenn og aðrir sem láta sig varða öryggi sjómanna eru hvattir til að mæta á fundina og koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Fyrsti fundurinn verður haldinn í húsnæði Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík mánudaginn 31. mars nk. frá kl. 20 til 22:30. Sjá dagskrá fundarins.
Aðrir fundir verða á Snæfellsnesi í apríl, á Ísafirði í maí og á Akureyri, Eskifirði og í Vestmannaeyjum í haust. Dagskrá þeirra verður auglýst síðar.
Landhelgisgæslan er meðal þeirra stofnana og félagasamtaka sem skipuleggja fundina. Þeir eru haldnir í tengslum við langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda. Aðrar stofnanir og félagasamtök sem standa að fundunum eru: Samgönguráðuneyti, Siglingastofnun Íslands, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Landssamband smábátaeigenda, Sjómannasamband Íslands, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Vélstjórafélag Íslands og Landsamband íslenskra útvegsmanna.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands