Flak Northrop-flugvélarinnar á botni Skerjafjarðar friðlýst
Þriðjudagur 11. febrúar 2003.
Fornleifavernd ríkisins hefur gefið út friðlýsingarskjal þar sem flak Northrop flugvélarinnar sem fannst í Skerjafirði 27. ágúst 2002 er friðlýst. Friðlýsingin felur í sér köfunarbann yfir flakinu og í 20 metra radíus í kringum það. Friðlýsingin gildir þar til annað verður ákveðið af Fornleifavernd ríkisins í samráði við Landhelgisgæslu Íslands og dómsmálaráðuneyti.
Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar hafa haft yfirumsjón með köfun við flakið og rannsókn á því. Þeir hafa aflað sér margvíslegra heimilda um það m.a. frá Northrop Gruman verksmiðjunum, flugsafninu í Kaliforníu og breska og norska sendiráðinu.
Eins og áður hefur komið fram fannst vélin með fjölgeislamæli sem bandaríski sjóherinn lánaði Landhelgisgæslunni síðasta sumar. Einu merkingarnar sem hafa fundist á vélinni eru norskir einkennislitir undir vængjum og númer á olíukæli. Flugvélin var í notkun á stríðstímum og því má reikna með sprengjum í eða við flakið. Ekki hefur verið staðfest hvort áhöfn vélarinnar fórst er hún sökk á sínum tíma og hvort líkamsleifar eru í vélinni.
Landhelgisgæslu Íslands
Mynd: Hrafnhildur Steinarsdóttir LHG. Á myndinni eru starfsmenn LHG, Sigurður Ásgrímsson og Adrian King sprengjusérfræðingar, Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi og Kristín Huld Sigurðardóttir forstöðumaður Fornleifaverndar.
Mynd Adrian King: Kafarar og sprengjusérfræðingar að störfum um borð í Baldri er unnið var að rannsókn flugvélarflaksins á botni Skerjafjarðar.
Þrívíddarmynd unnin uppúr mæligögnum úr fjölgeislamælinum af flugvélarflakinu á botni Skerjafjarðar