Fréttasafn

Stefna okkar er að halda almenningi, stjórnvöldum og starfsfólki vel upplýstu um starfsemina og stuðla þannig að jákvæðri og sterkri ímynd Landhelgisgæslunnar í þjóðfélaginu.


Fréttayfirlit


Sýnatökubúnaður afhentur áhöfn Þórs - 29.10.2021

IMG_6727_1635500164503

Á dögunum komu starfsmenn Umhverfisstofnunar um borð í varðskipið Þór færandi hendi. Í farteskinu höfðu þau tösku með búnaði til að taka sýni úr olíuflekk í sjó. Tilgangur með sýnatöku er að tengja saman hugsanlegan mengunarvald við olíuflekkinn. Haldið var námskeið um borð fyrir áhöfnina og starfsmenn aðgerðasviðs, þar sem farið var yfir verklag um framkvæma sýnatöku.

Freyja komin í fánalitina í Rotterdam - 28.10.2021

249217180_559254988706130_4778105120559511239_n

Varðskipið Freyja er nú komið á flot í litum Landhelgisgæslunnar í Rotterdam. Varðskipið var tekið upp í slipp fyrr í mánuðinum þar sem það var málað og unnið að minniháttar lagfæringum. Áhöfn Freyju er komin til Hollands og undirbýr heimsiglinguna. Gert er ráð fyrir að skipið komi til Siglufjarðar þann 6. nóvember.

10 ár frá komu Þórs til landsins - 26.10.2021

_MG_1520

Í dag eru tíu ár frá komu varðskipsins Þórs til landsins. Skipið hafði fyrst viðkomu í Vestmannaeyjum þann 26. október árið 2011 að viðstöddu fjölmenni. Það þótti vel við hæfi þar sem fyrsta varðskipið Þór, sem upphaflega var keypt til björgunarstarfa við Vestmannaeyjar, varð upphafið að stofnun Landhelgisgæslunnar árið 1926.

Varðskipið Freyja gert tilbúið til heimferðar - 19.10.2021

Einar-Valsson-og-Fridrik-Hoskuldsson

Varðskipið Freyja er nú komið í slipp í Rotterdam þar sem það er málað í litum Landhelgisgæslunnar. Prófanir fóru fram á skipinu og búnaði þess í síðustu viku og gengu vel.

300 þátttakendur á alþjóðlegri æfingu sprengjusérfræðinga hér á landi - 19.10.2021

Sprengjuserfraedingur-a-aefingu

Northern Challenge, árleg æfing sprengjusérfræðinga, hófst formlega á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í dag og stendur fram í næstu viku. Um er að ræða alþjóðlega æfingu Atlantshafsbandalagsins sem Landhelgisgæslan hefur veg og vanda af. Hún fer að stærstum hluta fram á starfssvæði Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli. Þetta er í tuttugasta sinn sem æfingin er haldin.

Grindhvalshræ dregin úr fjöru og komið fyrir um borð í Þór - 12.10.2021

Image00001_1634058040693

Áhöfnin á varðskipinu Þór dró um fimmtíu grindhvalshræ úr fjörunni í Melavík á Ströndum um borð í varðskipið Þór í dag. Grindhvalina rak á land í Árneshreppi á Ströndum fyrr í mánuðinum. Hræin voru dregin með léttbátum varðskipsins og hífð með krana um borð í Þór.

12 björgunarkafarar útskrifaðir - 11.10.2021

20211008_155531

Tólf starfsmenn Landhelgisgæslunnar, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Ríkislögreglustjóra voru í dag útskrifaðir sem björgunarkafarar við hátíðlega athöfn í Skógarhlíð. 

Fjórir hífðir um borð í TF-GRO eftir að skúta strandaði við Æðey - 5.10.2021

Skutan
Fjórir skipverjar á skútu sem strandaði við Æðey í Ísafjarðardjúpi voru hífðir um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Þyrlusveitin aðstoðaði við rýmingu í Útkinn - 4.10.2021

Image00006_1633354209098

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni almannavarna til að aðstoða við rýmingu í Útkinn vegna aurskriða sem þar féllu. Fjórir voru fluttir til Húsavíkur. Þyrlusveitin flaug um svæðið í gær ásamt lögreglu til að meta aðstæður.

Köfunarnámskeið um borð í Þór - 4.10.2021

Baujur-1-2.00_01_59_08.Still003

Um þessar mundir stendur yfir sameiginlegt köfunarnámskeið Landhelgisgæslunnar, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðis og Ríkislögreglustjóra um borð í varðskipinu Þór.