Fréttasafn

Stefna okkar er að halda almenningi, stjórnvöldum og starfsfólki vel upplýstu um starfsemina og stuðla þannig að jákvæðri og sterkri ímynd Landhelgisgæslunnar í þjóðfélaginu.


Fréttayfirlit


Northern Challenge hafin - 26.9.2023

Image00007_1695719759085

Landhelgisgæsla Íslands stendur fyrir hinni árlegu Northern Challenge sem er fjölþjóðleg æfing sprengjusérfræðinga. Um er að ræða alþjóðlega æfingu Atlantshafsbandalagsins sem séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar skipuleggur. Um 400 þátttakendur frá 15 löndum taka þátt að þessu sinni.

Þór dró Polarfront til Reykjavíkur - 25.9.2023

IMG_0542

Varðskipið Þór kom með franska farþegaskipið Polarfront til Reykjavíkur um miðjan dag eftir að hafa dregið það frá Fönfirði á Grænlandi. Ferðin til Reykjavíkur frá Gænlandi tók þrjá sólarhringa og gekk vel.

Þór með franskt farþegaskip í togi frá Grænlandi - 23.9.2023

Polarfront-og-Thor-i-Fon-firdi

Varðskipið Þór er nú með franska farþegaskipið Polarfront í togi frá Grænlandi til Reykjavíkur. Í vikunni var leitað til Landhelgisgæslunnar vegna farþegaskipsins sem var búið að vera vélbilað innst í Fönfirði, sem er inn af Scorespysundi á Grænlandi, í nokkra daga.

Eldur kom upp í fiskibát á Siglufirði - 23.9.2023

Sigurvin-Landsbjorg

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu um að eldur væri í vélarrúmi fiskibáts sem staddur var um 500 metra norður af Siglufjarðarhöfn laust fyrir klukkan eitt í nótt. Þrír voru um borð í bátnum.

Bjarni Sæmundsson laus af strandstað - 21.9.2023

YD9A0962

Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson sem strandaði á Sveinseyri í Tálknafirði á tíunda tímanum í kvöld er laust af strandstað. 

ARCSAR ráðstefna heppnaðist vel - 15.9.2023

Asgeir-Audunn2

Ráðstefnu Landhelgisgæsla Íslands í samstarfi við þátttakendur í ARCSRAR samstarfsverkefninu lauk á Hilton Nordica síðdegis í dag. 

Varðskip til Hafnar í Hornafirði í fyrsta sinn - 15.9.2023

Thor-a-hofn

Varðskipið Þór lagðist að bryggju á Höfn í Hornafirði í morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem varðskip Landhelgisgæslunnar kemur til Hafnar. 

ARCSAR ráðstefna haldin í Reykjavík - 13.9.2023

ARCSAR-4

Landhelgisgæsla Íslands í samstarfi við þátttakendur í ARCSRAR samstarfsverkefninu stendur fyrir áhugaverðri ráðstefnu á morgun og föstudag á Hilton Reykjavík Nordica.

Flutningaskip tók niðri við Akurey - 11.9.2023

20230910_160646

Erlent flutningaskip tók niðri við Akurey um klukkan þrjú í dag þegar skipið var á leið frá Reykjavík. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar var þegar gert viðvart. 

TF-SIF annaðist sjúkraflug í Gautaborgar - 11.9.2023

376746556_686010156891571_1945374600887847663_n

Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, var kölluð út síðdegis í gær til að annast sjúkraflutning frá Akureyri til Gautaborgar vegna líffæraskipta. 

Þrjú útköll það sem af er degi - 8.9.2023

Thyrla-og-skemmtiferdaskip

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur það sem af er degi sinnt þremur útköllum. Eitt þeirra var vegna bráðra veikinda um borð í farþegaskipi norður af Horni, annað vegna rútuslyss í nágrenni Blönduóss og þriðja vegna veikinda á Norðvesturlandi.

Krefjandi björgunaraðgerð í Gleiðarhjalla - 4.9.2023

Mynd-4

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á föstudaginn vegna pilts í sjálfheldu í miklum bratta í Gleiðarhjalla fyrir ofan Ísafjörð. Björgunarsveitarfólk á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru sömuleiðis kallað út og hélt upp í fjallið að drengnum. 

Þyrlusveit og björgunarsveitir björguðu pilti úr sjálfheldu - 1.9.2023

20230901_004048

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austurlandi björguðu pilti úr sjálfheldu á Kambfjalli inn af Fáskrúðsfirði í nótt. Pilturinn sat fastur á þverhníptri skoru í rúmlega 400 metra hæð.