Fréttayfirlit: 2018 (Síða 4)
Æfðu reykköfun um borð í togara
Æfingin tókst afar vel og er nauðsynleg svo unnt sé að bregðast við óvæntum atburðum um borð í skipum.
Leki kom að báti vestur af Straumnesi
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá fiskibáti sem staddur var 28 sjómílur vestur af Straumnesi eftir að leki kom upp í vélarrúmi hans. Einn var um borð í bátnum og fylltist vélarrúmið hratt. Svo heppilega vildi til að bæði þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, og varðskipið Týr voru stödd á nálægum slóðum þegar neyðarkallið barst.
TF-LIF í viðbragðsstöðu vegna flugvélar í vanda
TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á ellefta tímanum í morgun eftir að eins hreyfils bandarísk flugvél sendi frá sér neyðarkall vegna gangtruflana í hreyfli. TF-LIF var send áleiðis til Hafnar í Hornafirði, til að vera þar í viðbragðsstöðu. Vélin lenti heilu og höldnu í Færeyjum klukkan 11:19 að íslenskum tíma en þá var TF-LIF snúið við.
Þrír bátar í vandræðum
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir landsins hafa haft í nógu að snúast í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir frá Siglufirði, Skagaströnd og Sauðárkróki voru kallaðar út á þriðja tímanum í dag vegna báts sem strandað hafði í fjöru við Reykjadisk í Skagafirði. TF-LIF var send á staðinn. Þá voru björgunarsveitir sömuleiðis kallaðar út vegna báta sem orðið höfðu vélarvana úti fyrir Vestfjörðum.
Einn staðinn að ólöglegum veiðum
TF-SYN, þyrla landhelgisgæslunnar, fór í gæsluflug um Norðurland og Vestfirði laust eftir hádegi í gær. Þegar þyrlan flaug yfir Húnaflóa var bátur staðinn að ólöglegum handfæraveiðum í skyndilokunarsvæði í flóanum. Áhöfn þyrlunnar vísaði bátnum til hafnar þar sem lögreglan tók við rannsókn málsins. Skipstjórans bíður kæra.
Líf á Blómstrandi dögum
Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, leit við á Blómstrandi dögum í Hveragerði í gær.
Loftrýmisgæsla NATO við Ísland að hefjast
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast að nýju með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Alls munu um 300 liðsmenn flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi.
Mannbjörg varð þegar eldur kom upp í báti á Héraðsflóa
Mannbjörg varð þegar eldur kom upp í bát á Héraðsflóa á þriðja tímanum í dag.
Rétt rúmum hálftíma eftir að TF-SYN var kölluð út var var búið að hífa skipverjann, sem var einn í bátnum, um borð í þyrluna. Aðstæður til björgunar á Héraðsflóa voru góðar og var maðurinn við góða heilsu þegar honum var bjargað um borð í þyrluna.
Yfirmaður bandaríska sjóhersins heimsótti Keflavík
John Richardsson aðmíráll, yfirmaður bandaríska sjóhersins, kom hingað til Íslands á dögunum og kynnti sér starfsemi Landhelgisgæslunnar í Keflavík. Ricardsson skoðaði aðstöðuna á Keflavíkurflugvelli og hitti bandaríska flugsveit sem stödd er hér á landi. Fulltrúar Landhelgisgæslunnar og utanríkisráðuneytisins tóku á móti Richardsson við komuna til landsins.
TF-SYN sótti slasaða konu í Fljótavík
TF-SYN, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á tólfta tímanum í dag vegna slasaðrar konu í Fljótavík. Þyrlan flutti konuna á Landspítalann í Fossvogi.
TF-SYN fengin til aðstoðar vegna grjótskriðu sem féll úr Fagraskógarfjalli
Áhöfnin á TF-SYN aðstoðaði lögreglu og jarðvísindamenn í Hítardal í dag vegna grjótskriðu sem féll úr Fagraskógarfjalli í nótt. Flogið var yfir svæðið og umfang skriðunnar metið.
TF-SIF í sjúkraflug til Árósa
Í vikunni barst Landhelgisgæslunni beiðni frá Landspítalanum þar sem óskað var eftir að TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, myndi annast flug með sjúkling sem þurfti að komast með hraði til Árósa vegna alvarlegra veikinda. TF-SIF fór í loftið frá Reykjavíkurflugvelli um kvöldmatarleytið á þriðjudag áleiðis til Danmerkur.
Þrjú þyrluútköll í dag
Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa þrívegis verið kallaðar út vegna slysa eða veikinda í dag.
Viðhald á Hrollaugseyjum
Starfsmenn vitadeildar Vegagerðarinnar vinna nú að viðhaldi á vitanum á Hrollaugseyjum ásamt áhöfninni á varðskipinu Þór. Áætlað er að vinna við vitann taki um fjóra til fimm daga.
Myndband sem sýnir svipmyndir frá vel heppnaðri ráðstefnu sigmanna
Samtök evrópskra sig- og björgunarmanna gerðu frábært myndband sem sýnir svipmyndir af sjósundi sigmanna með forseta Íslands, sameiginlegri æfingu við ytri höfn Reykjavíkur og sundkeppni, svo eitthvað sé nefnt. Allt var þetta liður í vel heppnaðri ráðstefnu sem sigmenn Landhelgisgæslunnar skipulögðu og haldin var hér á landi í síðasta mánuði.
Veikur skipverji sóttur á haf út
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk beiðni um aðstoð á tíunda tímanum í gær frá kanadískri skútu sem stödd var 155 sjómílur suðaustur af Höfn í Hornafirði en þar um borð var maður sem þurfti að komast undir læknishendur. Björgunarskipið Ingibjörg, á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, hélt á ellefta tímanum í morgun til móts við skútuna og mun flytja manninn til Hafnar í Hornafirði.