Fréttayfirlit: 2011 (Síða 5)
Varðskipið Týr kom fyrir öldumælisdufli vestur af Sandgerði
Þór siglir yfir miðbaug
Varðskipið Þór sigldi í gær yfir miðbaug á leið sinni til Íslands. Áætlað er að Þór fari um Panama skurð 6.-7. október og er hægt að fylgjast með vefmyndavélum í rauntíma þegar skip fara þar í gegn
Sjávarútvegsskóli Sameinuðu þjóðanna heimsækir LHG
Landhelgisgæslan fékk í gær heimsókn tuttugu nemenda í Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Fengu þau kynningu á starfsemi stjórnstöðvar með áherslu á fiskveiðieftirlit og -stjórnun. Voru þau mjög áhugasöm um verkefni Landhelgisgæslunnar en markmið skólans er að efla sérfræðiþekkingu í sjávarútvegi og fiskveiðum í þróunarríkjum.
Þyrla LHG sækir sjúkling að Flúðum
Landhelgisgæslunni barst kl. 10:37 beiðni um að þyrla LHG myndi sækja sjúkling að Flúðum en um bráðatilfelli var að ræða. Þyrluáhöfn var kölluð út og fór TF-LÍF í loftið kl. 11:03.
Gæsluflug um vestanvert landið
Þyrla Landhelgisgæslunnar fór kl. 13:50 í dag í gæslu- og eftirlitsflug um Breiðafjörð, Vestfirði og Faxaflóa þar sem m.a. var flogið um svæði þar sem tilkynnt hefur verið um borgarísjaka og íshröngl. Einnig var flogið um skyndilokunar og reglugerðarhólf.
ÞÓR siglir úr höfn í Chile - sjö þúsund sjómílna sigling framundan
Varðskipið ÞÓR sigldi í dag kl. 16:29 að íslenskum tíma, úr höfn Asmar skipasmíðastöðvar sjóhersins í Chile þar sem skipið hefur verið í smíðum frá árinu 2007. Framundan er sjö þúsund sjómílna sigling (um fjórtán þúsund kílómetrar) til Íslands.
Hafís út af Vestfjörðum
Margar tilkynningar hafa að undanförnu borist Landhelgisgæslunni um hafís út af Vestfjörðum. Borgarísjakar og íshröngl hafa sést á siglingaleiðum og getur sjófarendum stafað hætta af þeim.
Nýtt skeytasendingaforrit
Hannað hefur verið sérstakt skeytasendingarforrit sem viðbót við sameiginlegt fjareftirlitskerfi Fiskistofu og Landhelgisgæslunnar (LHG), svo kallaður NAF-reporter. Forritið er þannig úr garði gert að skipstjórnarmenn velja sér veiðisvæði og forritið þekkir hvaða skeyti eiga við um veiðar á hvaða svæði og leiðir menn áfram við gerð einstakra skeyta auk þess að samnýta upplýsingar úr rafrænni afladagbók þar sem því verður við komið. Væntingar standa til að þetta auki hagræði við gerð og skil á skeytum líkt og skylda ber til í alþjóðasamningum og auðveldi skipstjórnarmönnum þá vinnu sem í skeytasendingunum felst.
Varðskipið ÞÓR afhent Landhelgisgæslunni
Varðskipið Þór var afhent Landhelgisgæslu Íslands við hátíðlega athöfn í dag kl. 11:45 að staðartíma (kl. 14:45 að íslenskum tíma) í Asmar skipasmíðastöð sjóhersins í Chile. Viðstödd athöfnina voru Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar sem veitti skipinu viðtöku og Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri í innanríkisráðuneytinu.
Varðskipið LHG bjargar flóttamönnum milli Marokkó og Spánar
Ægir, varðskip Landhelgisgæslunnar sem er að störfum á vegum landamærastofnunar Evrópubandalagsins, FRONTEX, bjargaði skömmu fyrir hádegi í dag 63 flóttamönnum af litlum, ofhlöðnum bát sem sökk miðja vegu á milli Marokkó og Spánar.
TF-LÍF tók þátt í sjóbjörgunaræfingu á Skagaströnd
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF tók í gær þátt í æfingu með sjóbjörgunarsveitum víða af landinu sem haldin var á Skagaströnd. Meðal annars var farið í leitarverkefni á sjó og æfðar hífingar með hraðbátum þar sem sigmanni var slakað og hann hífður í báta á ferð.
Fallbyssukúla frá seinni heimstyrjöldinni fannst í malbikunarstöð
Starfsmenn Malbikunarstöðvarinn Höfða brugðust hárrétt við í gær við þegar þeir fundu ósprungna sprengju í vinnslunni hjá sér. Þeir höfðu samband við Landhelgisgæsluna sem sendi sprengjusveitina tafarlaust á vettvang.
TF-LÍF í útkall til Vestmannaeyja
Bátur vélarvana í miðjum Seyðisfirði
Landhelgisgæslunni barst kl. 06:16 neyðarkall á rás 16 frá bát sem var vélarvana og leki hafði komið að í miðjum Seyðisfirði. Fjórir menn voru um borð og sögðu þeir dælur bátsins hafa vel undan. Báturinn var dreginn til Seyðirfjarðar þar sem komið var til hafnar kl. 08:15.
TF-LÍF flaug á Mýrdalsjökul með búnað vísindamanna
General Stephane Abrial, SACT kynnti sér starfsemi Landhelgisgæslunnar
General Stephane Abrial, Supreme Allied Commander Transformation NATO, SACT kynnti sér í dag starfsemi Landhelgisgæslunnar. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, Jón B. Guðnason yfirmaður Landhelgisgæslunnar í Keflavík og Ásgrímur L. Ásgrímsson, starfandi framkvæmdastjóri aðgerðasviðs og yfirmaður stjórnstöðvar tóku á móti Abrial.