Fréttasafn

Stefna okkar er að halda almenningi, stjórnvöldum og starfsfólki vel upplýstu um starfsemina og stuðla þannig að jákvæðri og sterkri ímynd Landhelgisgæslunnar í þjóðfélaginu.


Fréttayfirlit


Þrjú rússnesk skip innan efnahagslögsögunnar - 31.8.2021

Vardskipid-Thor_1609164504038

Landhelgisgæslan fylgdist með ferðum þriggja rússneskra skipa innan íslensku efnahagslögsögunnar. Tvö skipanna voru austan við landið og eitt á siglingu norður af landinu.

Áhöfnin á Þór við eftirliti í Sæunnarsundi - 31.8.2021

IMG_8096_1630412829201

Hið árlega Sæunnarsund í Önundarfirði fór fram um helgina og var áhöfnin á varðskipinu Þór þeim tuttugu og átta sundköppum sem þreyttu sundið til halds og trausts. Tveir léttbátar varðskipsins Þórs voru til taks og við eftirlit auk báta frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg meðan sundkapparnir syntu yfir fjörðinn.

Bandarískar herflugvélar æfa við Ísland - 23.8.2021

H-1

Þrjár flugvélar bandaríska flughersins af gerðinni Northrop B-2 Spirit komu hingað til lands í kvöld og munu hafa tímabundið aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli næstu daga vegna æfinga. Vélarnar koma hingað til lands frá Bandaríkjunum og alls taka 200 liðsmenn flughersins þátt í verkefninu.

Veikur skipverji sóttur af þyrlu LHG - 23.8.2021

1_1629737075163

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út laust fyrir klukkan átta í morgun vegna veikinda um borð í erlendu herskipi sem statt var rúmar tuttugu sjómílur austur af Vattarnesi.

Pólski flugherinn annast loftrýmisgæslu - 19.8.2021

H-1

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast með komu flugsveitar pólska flughersins, sem tekur þátt í verkefninu á Íslandi í fyrsta sinn.

Fiskibátur sem datt úr tilkynningarskyldu fannst eftir leit - 18.8.2021

Nota2_1600696453556

Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarskipið Hafbjörg, á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, voru kölluð út í morgun vegna báts sem datt úr sjálfvirkri tilkynningarskyldu og svaraði ekki kalli stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar. Áhöfn nálægs fiskibáts náði sambandi við bátinn sem staddur var djúpt austur af landinu.

Áhafnir Baldurs, TF-EIR og Gísla Jóns kallaðar út í nótt - 13.8.2021

Baldur-Gisli-utkall

Landhelgisgæslan sinnti tveimur útköllum á Vestfjörðum vegna veikinda í nótt.

Fjögur þyrluútköll í gær - 11.8.2021

Thyrla-og-sjukrabill

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sinnti fjórum útköllum vegna slysa og veikinda í gær.

Bandaríski sjóherinn kannaði hugsanlega olíumengun - 6.8.2021

800px-Boeing_P-8A_Poseidon_flies_over_Jacksonville_-1-

Bandaríski sjóherinn kannaði hugsanlega olíumengun djúp suður af Reykjanesi í vikunni. Engin mengun reyndist vera á svæðinu.

Þyrlusveitin var á ferð og flugi um verslunarmannahelgina - 3.8.2021

Eir-vid-Drumbsstadi

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var á ferð og flugi um verslunarmannahelgina og sinnti fjölmörgum verkefnum, þar af fjórum útköllum.