Fréttasafn

Stefna okkar er að halda almenningi, stjórnvöldum og starfsfólki vel upplýstu um starfsemina og stuðla þannig að jákvæðri og sterkri ímynd Landhelgisgæslunnar í þjóðfélaginu.


Fréttayfirlit


Áhöfn Freyju tók tvo báta í tog - 31.5.2023

Freyja-utkall

Áhöfnin á varðskipinu Freyju aðstoðaði skipstjóra tveggja fiskibáta sem lentu í vandræðum þegar þeir voru á veiðum úti fyrir Rifi um hádegisbil í gær.

Baldur mælir við Strandir í sumar - 26.5.2023

20230525_155459_resized

Eftirlits- og sjómælingabáturinn Baldur hefur nú hafið árlegt úthald við dýptarmælingar vegna sjókortagerðar. Í sumar verður Baldur við mælingar við Strandir.

Landhelgisgæslan aðstoðar lögreglu við öryggisgæslu vegna leiðtogafundarins - 16.5.2023

TF-SIF-take-off

Dagurinn hefur verið eftirminnilegur og annasamur hjá Landhelgisgæslunni sem aðstoðar lögreglu við öryggisgæslu vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins sem fram fer í Reykjavík.

Bretar annast loftrýmisgæslu meðan á leiðtogafundinum stendur - 16.5.2023

LHG_1257

Í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík dagana 16.-17. maí sinnir flugsveit breska flughersins loftrýmisgæslu við Ísland. 

TF-SIF kölluð fyrr heim til landsins vegna leiðtogafundar - 15.5.2023

TF-SIF-Lendir

TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, lenti á Reykjavíkurflugvelli í hádeginu en vélin var kölluð fyrr til landsins úr verkefnum sínum fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópu, vegna leiðtogafundarins í næstu viku.

Þyrlusveitin æfði með áhöfn Van Amstel - 11.5.2023

Image00005_1683809627351

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hélt sameiginlega æfingu með áhöfn hollenska herskipsins Van Amstel vestur af landinu í vikunni. Van Amstel tilheyrir fastaflota Atlantshafsbandalagsins sem hafði viðkomu hér á landi á dögunum.

Norræna sjómælingaráðið fundaði í Álaborg - 10.5.2023

NHC661

Fundur Norræna sjómælingaráðsins (Nordic Hydrographic Commission, NHC) fór fram nýverið í Álaborg. Á fundinum voru samþykktir ráðsins endurskoðaðar í samræmi við samþykktir Alþjóðasjómælingastofnunarinnar (IHO). 

Þyrlusveitin annaðist sjúkraflug frá Vestmannaeyjum - 10.5.2023

Utkall-VEstmannaeyjar-TF-GRO

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út í nótt til að sinna sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum. Ekki reyndist unnt að senda sjúkraflugvél til Eyja vegna slæms skyggnis.

Björgunaræfingin Faxi heppnaðist vel - 9.5.2023

Image00001_1683638662630

Rúmlega hundrað þátttakendur tóku þátt í sjóbjörgunaræfingunni Faxa 23 um helgina þar sem fjöldabjörgun farþega frá hvalaskoðunarskipi var æfð úti fyrir Reykjavík. Viðbragðsaðilar og hvalaskoðunarfyrirtækið Elding stóðu að æfingunni.

Bátur sem féll úr tilkynningarskyldu fannst eftir stutta leit - 8.5.2023

_S4I8081-4

Þyrla Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, voru kallaðar út í hádeginu vegna fiskibáts sem datt úr sjálfvirkri tilkynningarskyldu og svaraði ekki kalli stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar. 

Þyrlusveit og sjóbjörgunarsveitir kallaðar út vegna leka sem kom að strandveiðibát - 8.5.2023

Nota2_1600696453556

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Snæfellsnesi voru kallaðar út laust fyrir klukkan tvö í dag vegna leka sem kominn var að strandveiðibáti sem staddur var um 10 sjómílur vestur af Öndverðarnesi. 

Þyrlusveit, áhöfnin á Þór og sjóbjörgunarsveitir kallaðar út vegna veikinda skipverja - 4.5.2023

_S4I8081-4

Laust eftir miðnætti fékk stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynningu um veikindi um borð í fiskibát sem var á strandveiðum vestur af Sandgerði.

Strandveiðar hafnar - 2.5.2023

Stjornstod-LHG_1600695887473

Mikið var um að vera í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í dag, á fyrsta degi strandveiðanna. Klukkan níu morgun voru um sex hundruð skip í fjareftirliti stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar. Þrír bátar höfðu samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í morgun vegna vélavandræða. Tveir þeirra voru dregnir til hafnar af björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fiskibátur dró þann þriðja til hafnar.

Freyja lýkur störfum í Steingrímsfirði - 2.5.2023

Freyja-siglir-fra-Wilson

Áhöfnin á varðskipinu Freyju hefur lokið störfum í Steingrímsfirði en þar hefur áhöfn skipsins verið undanfarna daga og unnið að björgun flutningaskipsins Wilson Skaw sem strandaði í Húnaflóa fyrir tæpum tveimur vikum. Gert er ráð fyrir því að Freyja fari af svæðinu síðar í dag.