Fréttasafn

Stefna okkar er að halda almenningi, stjórnvöldum og starfsfólki vel upplýstu um starfsemina og stuðla þannig að jákvæðri og sterkri ímynd Landhelgisgæslunnar í þjóðfélaginu.


Fréttayfirlit


Þyrlur Landhelgisgæslunnar taka þátt í umferðareftirliti - 29.6.2007

Gná - móttökuathöfn í flugskýli 7.6.07

Föstudagur 29. júní 2007.
Þyrlur Landhelgisgæslunnar taka þátt í umferðareftirliti um helgina. Það er liður í samstarfi Ríkislögreglustjórans og annarra lögregluembætta við forvarnir gegn umferðarslysum.  Framhald verður á þessu samstarfi í sumar.

Þyrludraumar vísindakonu - 29.6.2007

Thorben Lund sigmaður/stýrimaður
Föstudagur 29. júní 2007.
Áhöfn Landhelgisgæsluþyrlunnar Gnár bárust í gær þakkir frá áhöfninni á bandaríska rannsóknaskipinu Knorr. Gná hafði ferjað nýjan rannsóknakapal til skipsins í stað kapals sem hafði skemmst og sótti einnig bátsmanninn sem var meiddur á fæti og kom honum til læknis á Landspítala Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi.

Nýtt björgunarskýli á Látrum - 26.6.2007

Sif aðstoðar við flutning timburs í björgunarskýli í Látrum

Þriðjudagur 26. júní 2007.
Á heimasíðu Grenivíkur er sagt frá byggingu nýs björgunarskýlis á Látrum en áhöfn Landhelgisgæsluþyrlunnar Sifjar aðstoðaði við að flytja timbur á byggingarstaðinn.

Mikill viðbúnaður vegna elds um borð í Hafsúlunni - 75 manns um borð - 26.6.2007

Gná - móttökuathöfn í flugskýli 7.6.07

Þriðjudagur 26. júní 2007.´
Allt tiltækt björgunarlið var kallað út á sjötta tímanum í gær vegna elds um borð í hvalaskoðunarskipinu Hafsúlunni. Sjötíu og fimm manns voru um borð en fljótlega tókst að slökkva eldinn og allt fór vel.

Færeysku línuskipi vísað til hafnar - 25.6.2007

Vaktstöð siglinga / stjórnstöðin 2007
Mánudagur 25. júní 2007.
Landhelgisgæslan vísaði færeysku línuskipi til hafnar í Þorlákshöfn um helgina þar sem rannsakað var meint brot skipstjórans gegn íslenskri fiskveiðilöggjöf. Var skipstjórinn grunaður um að hafa veitt ólöglega á lokuðu svæði á Kötlugrunni.

Opinber rafræn sjókort - 21.6.2007

E36-hluti

Í dag, 21. júní, er Alþjóðlegi sjómælingadagurinn. Á liðnu ári varð Alþjóðasjómælingastofnunin 85 ára. Af því tilefni samþykktu Sameinuðu þjóðirnar að gera þennan dag að Alþjóðlega sjómælingadeginum. Í ár er þema dagsins rafræn sjókort (Electronic Navigational Charts, ENC).

Áhöfnin á Syn stóð skipstjóra að meintum ólöglegum veiðum - 20.6.2007

Kort_syn040309
Miðvikudagur 20. júní 2007.
Áhöfnin á Syn, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, stóð skipstjóra á fiskibát að meintum ólöglegum línuveiðum inni í lokuðu hólfi 7,8 sjómílur norðvestur af Deild um hádegisbilið í gær.

Landhelgisgæslan æfir með sérsveit Ríkislögreglustjórans og Delta sveit norsku lögreglunnar - 18.6.2007

Æfing LHG með sérsveit RLS og Delta sveit norsku lögreglunnar

Mánudagur 18. júní 2007.
Nýlega æfði Landhelgisgæslan með sérsveit Ríkislögreglustjórans og Delta sveit norsku lögreglunnar. Æfingin var haldin í Hvalfirði.

Leitar- og björgunaræfingar - 14.6.2007

Ægir og Syn - æfing sumarið 2007

Fimmtudagur 14. júní 2007.
Áhafnir skipa og loftfara Landhelgisgæslunnar halda reglulega sameiginlegar æfingar í leit og björgun. Guðmundur St. Valdimarsson tók flottar myndir þegar áhöfn varðskipsins Ægis æfði annars vegar með áhöfn björgunarþyrlunnar Eirar og síðar sama dag með áhöfn eftirlitsflugvélarinnar Synjar.

Nýr léttbátur um borð í varðskipinu Ægi - 14.6.2007

Nýr léttbátur í Ægi sumar 2007
Fimmtudagur 14. júní 2007.
Varðskipið Ægir hefur nú fengið nýjan léttbát og eru því samtals fimm léttbátar um borð í skipinu.

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar við mannúðarstörf í Líbanon á vegum Íslensku friðargæslunnar - 13.6.2007

Líbanon 2007
Miðvikudagur 13. júní 2007.
Sprengjusérfræðingar frá Landhelgisgæslunni ásamt bráðatæknum frá Slökkviliði Reykjavíkur komu nýlega heim til Íslands eftir 3 mánaða verkefni í suðurhluta Líbanon.

Utanríkisráðuneytið styrkir baráttuna gegn ólöglegum fiskveiðum - Landhelgisgæslumaður að störfum í Róm - 12.6.2007

Gylfi og Georg í Róm - heimsókn til FAO
Þriðjudagur 12. júní 2007.
Utanríkisráðuneytið segir frá því í Stiklum að ráðuneytið kosti starf sérfræðings frá Landhelgisgæslunni við fjareftirlit með skipum og við rafrænar afladagbækur í fiskideild FAO í Róm.  Þar er einnig sagt frá heimsókn Georgs Kr. Lárussonar til FAO.

Kajakræðarar fundust heilir á húfi eftir umfangsmikla leit - 12.6.2007

Þriðjudagur 12. júní 2007.
Tveir kajakræðarar sem leitað var að fundust heilir á húfi. Misskilingur varð þess valdandi að óttast var um þá.

Áhöfn Lífar sótti ísklifurkonur á Grænlandsjökul - 11.6.2007

Ísklifurkonur Líf Grænland 100607
Sunnudagur 10. júní 2007.
Björgunarþyrlan Líf flaug til Grænlands í gær til að sækja nokkrar vaskar konur sem höfðu verið þar við ísklifuræfingar. Flugvél þeirra hafði hlekkst á.

Björgunarþyrlan Líf flutti sérsveit Ríkislögreglustjórans vegna byssumanns í Hnífsdal - 11.6.2007

Laugardagur 9. júní 2007.
Föstudagskvöldið, 8. júní, var þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar kölluð út með bráðaútkalli, og beðið um flutning á sérsveitarmönnum Ríkislögreglustjórans vegna skotárásar í Hnífsdal.

Björgunarþyrlunni Gná fagnað - 8.6.2007

Gná - móttökuathöfn í flugskýli 7.6.07
Föstudagur 8. júní 2007.
Björgunarþyrlan Gná kom til landsins sl. laugardag. Hún var leigð frá norska fyrirtækinu Norsk Helicopter í Stavanger.   Í gær var starfsmönnum Landhelgisgæslunnar og dómsmálaráðuneytisins boðið í móttökuathöfn í flugskýli Landhelgisgæslunnar þar sem Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra flutti erindi af þessu tilefni og Geirþrúður Alfreðsdóttir sagði frá þyrlunni og eiginleikum hennar.