Fréttasafn

Stefna okkar er að halda almenningi, stjórnvöldum og starfsfólki vel upplýstu um starfsemina og stuðla þannig að jákvæðri og sterkri ímynd Landhelgisgæslunnar í þjóðfélaginu.


Fréttayfirlit


TF-LIF flutti veikan skipverja á sjúkrahús - 27.1.2019

TF-LIF-LIF

TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, flutti veikan skipverja á frystitogara á sjúkrahús í gærkvöld. Skipstjóri togarans hafði samband við Neyðarlínu vegna veikinda um borð og eftir samráð við þyrlulækni var ákveðið maðurinn yrði fluttur á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Kræsingar í tilefni bóndadagsins - 25.1.2019

IMG_4507

Konurnar hjá Landhelgisgæslunni tóku höndum saman í morgun og gerðu afar vel við karlkyns vinnufélaga sína í tilefni bóndadagsins og buðu til veglegar kökuveislu. Þetta mæltist mjög vel fyrir og sló svo sannarlega í gegn .Um samstilltar aðgerðir var að ræða sem fóru fram samtímis í Keflavík, Skógarhlíð og Reykjavíkurflugvelli. 

Guðmundur Ragnar maður ársins 2018 á Suðurnesjum - 24.1.2019

GudmundurRagnarMagnusson_190119_09LHG

Guðmundur Ragnar Magnússon, stýrimaður og sigmaður hjá Landhelgisgæslunni, er maður ársins 2018 á Suðurnesjum að mati dómnefndar Víkurfrétta. Guðmundur fékk viðurkenninguna afhenta þegar hann fór í sitt fyrsta flug eftir að hafa rifbeinsbrotnað við björgunaraðgerðir flutningaskipsins Fjordvik í nóvember. Guðmundur Ragnar og áhöfn TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar, bjargaði þá fimmtán við erfiðar aðstæður. 

Varðskipið Týr dró fiskiskipið Kristínu GK til Hafnarfjarðar - 21.1.2019

IMG_7184-2-Mynd-Gudmundur-St.-Valdimarsson

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð frá fiskiskipinu Kristínu GK síðdegis í gær en skipið var þá vélarvana um 30 sjómílur vest-norðvestur af Garðskaga. Varðskipið Týr var þá úti fyrir Keflavík og hélt þegar í átt að fiskiskipinu. Áhöfn varðskipsins skaut línu yfir í skipið á tíunda tímanum í gærkvöldi og hélt að því búnu með það áleiðis til Hafnarfjarðar.

Deiliskipulag öryggissvæðis á Keflavíkurflugvelli - 18.1.2019

Screen-Shot-2019-01-18-at-21.34.56

Utanríkisráðuneytið hefur falið Landhelgisgæslu Íslands að vinna deiliskipulag fyrir öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli. Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga er unnin lýsing fyrir deiliskipulagið.
Deiliskipulagið fjallar m.a. um afmörkun nýrra svæða fyrir hættulegan farm, svæði fyrir skammtíma gistiaðstöðu, efnisvinnslusvæði, gistisvæði, geymslusvæði og aðra landnotkun og starfsemi, svo sem þyrlupall og girðingar.

Nýr mælingabúnaður fyrir Baldur - 18.1.2019

IMG_7212

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Jón Tryggvi Helgason, framkvæmdastjóri ÍSMAR, undirrituðu á dögunum samning um kaup Landhelgisgæslunnar á nýjum mælingabúnaði fyrir sjómælingaskipið Baldur.

Flengur afhentur Landhelgisgæslunni - 17.1.2019

50104915_2253429221591820_8855850594414362624_o

Landhelgisgæslan fékk nýjan og glæsilegan léttbát fyrir varðskipið Tý afhentan í vikunni. Hann nefnist Flengur 850 og var smíðaður af Rafnari ehf. Flengur var hífður um borð í varðskipið Tý í gær og sómir sér afar vel um borð eins og sjá má.


Jómfrúarferð Eiríks sem skipherra - 17.1.2019

Ljosmynd-2_1547727542083

Varðskipið Týr lagði frá bryggju í gær, sem er ekki í frásögur færandi  nema fyrir þær sakir að Eiríkur Bragason hélt í jómfrúarferð sína sem skipherra. Eiríkur leysir Einar H Valsson  af næstu daga og svo aftur síðar á árinu. Ferðin er auk þess merkileg því um er að ræða fyrstu jómfrúarferð skipherra hjá Landhelgisgæslunni í tólf ár.

Veiðar nærri fjarskiptastrengjum - 16.1.2019

Strengir

Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar þurftu tvívegis að vara skipstjórnarmenn skipa við sem voru á veiðum nærri sæstrengjum um helgina. Landhelgisgæslan telur rétt að árétta að sjófarendur skuli sýna aðgæslu og gæta varúðar þar sem fjarskiptastrengir liggja í sjó.

Æft með Dönum í Reykjavík - 15.1.2019

Áhafnir varðskipanna Þórs og Hvidbjørnen héldu sameiginlega æfingu í Reykjavík á dögunum. Æfð var reykköfun og umönnun slasaðra. Áhafnir beggja skipa eru vel þjálfaðar og nýttu tækifærið þegar danska varðskipið var við bryggju í Reykjavík. Halldór Benóný Nellett, skipherra á Þór, segir að samstarf þjóðanna sé afar gott og Danir hafi reynst Landhelgisgæslunni vel í gegnum tíðina. Meðfylgjandi myndband sýnir frá þessari áhugaverðu æfingu.

Viðbúnaður vegna gangtruflana í 9000 tonna gámaflutningaskipi - 14.1.2019

Landhelgisgæslan setti varðskip, þyrlu og björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum í viðbragðsstöðu laust eftir hádegi í dag vegna gangtruflana í 9000 tonna gámaflutningaskipi. Skipið var þá statt úti fyrir Reykjanesskaga og var næst landi um fjórar sjómílur SSA af Reykjanestá.

TF-SYN sótti bráðveikan sjúkling - 9.1.2019

Thyrlan-og-sjukrabill-vid-Holavoga

Bráðveikur maður var sóttur með TF-SYN, þyrlu Landhelgisgæslunnar, í morgun. Vegna veðurskilyrða á Snæfellsnesi var ákveðið að sjúkrabíll færi til móts við þyrluna, vestan jökuls, vegna slæmra veðurskilyrða. Maðurinn var fluttur á Landspítalann í Fossvogi.

Leituðu af sér allan grun í Skerjafirði - 9.1.2019

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu frá fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra um að neyðarblys hefði sést úti fyrir Skerjafirði skömmu fyrir hádegi í gær. Enginn bátur var þá í ferilvöktun í firðinum en engu að síður var ákveðið að senda björgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Óðinn, eftirlitsbát Landhelgisgæslunnar, til leitar.  Á fjórða tímanum var leitinni hætt enda búið að ganga úr skugga um að engin neyð væri til staðar í firðinum.  

Kortakaka með kaffinu - 8.1.2019

20190108_094150

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar eru vanari því að lesa úr sjókortum og útbúa þau en að leggja sér þau til munns. Einhvern tímann er allt fyrst og í morgun var sjókort af Akranesi borðað með bestu lyst á skrifstofu Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð. Tilefnið var ærið enda kom ný útgáfa af sjókortinu af Akranesi út rétt fyrir jólin og sömuleiðis var því fagnað að um þessar mundir er yfirfærslu síðasta sjókortsins yfir í nýjan hugbúnað að ljúka

Uppfærður flugleiðsögubúnaður kominn í TF-LIF - 8.1.2019

AEfing-med-Thor-8.1.2019

Um miðjan nóvember var ráðist í umfangsmikla uppfærslu á flugleiðsögubúnaði TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, og var kanadíska fyrirtækið Heli One fengið til verksins.  Flugvirkjar hafa undanfarnar vikur unnið dag og nótt við breytinguna á vélinni sem er nú loksins tilbúin með nýjan fullkomnari flugleiðsögubúnað.

Landhelgisgæslan leitar að flugvirkja - 4.1.2019

Landhelgisgæsla Íslands leitar að áhugasömum flugvirkja til að slást í samhentan hóp stofnunarinnar. Viðkomandi þarf að vera traustur, með ríka þjónustulund og geta tekist á við krefjandi verkefni. Umsóknarfrestur er til og með 21. janúar 2019.

Síða 1 af 2