Fréttayfirlit
2024
október, september, ágúst, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2023
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2022
desember, nóvember, október, september, ágúst, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2021
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2020
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2019
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2018
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2017
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2016
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2015
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2014
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2013
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2012
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2011
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2010
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2009
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2008
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2007
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
TF-SIF í eftirliti á Reykjaneshrygg
TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar fór í dag í eftirlitsflug suður Reykjaneshrygg og suður fyrir efnahagslögsögumörkin til að kanna stöðuna á úthafskarfamiðum. Sex rússnesk skráðir togarar voru að veiðum um 25 sjómílur fyrir utan lögsögumörkin og voru tveir spænskir togarar fyrir sunnan svæðið og stefndu á miðin.
Varðskipið Ægir kemur með Torita til Reykjavíkur
Síðdegis á sunnudag kom varðskipið Ægir með norska línuskipið TORITA til hafnar í Reykjavík en skipið varð vélarvana um 500 sml SV af Garðskaga. Beiðni um aðstoð frá skipinu barst Landhelgisgæslunni á miðvikudag og hélt Ægir samstundis til aðstoðar. Eru hér myndir frá komunni til Reykjavíkur.
Varðskipið Þór á leið til Íslands
Varðskipið Þór, hélt síðdegis í gær frá Bergen í Noregi og kom snemma í morgun til eyjunnar Kvamsøya í Noregi. Þar tekur varðskipið pramma sem er í eigu Ístaks og verður hann dreginn til Íslands.
Kveðjukaffi í Skógarhlíðinni
Tveir starfsmenn Landhelgisgæslunnar létu af störfum í dag eftir áratuga farsælt starf. Eru það þær Sjöfn Axelsdóttir, sem starfað hefur í 33 ár sem sjókortagerðarmaður hjá sjómælingadeild Landhelgisgæslunnar og Sigríður Ólafsdóttir sem annaðist mötuneyti Landhelgisgæslunnar á Seljavegi frá árinu 2003 og síðar ræstingar í Skógarhlíð.
Varðskip dregur norskt línuskip til hafnar
Upp úr klukkan fjögur í morgun tók varðskipið Ægir norska línuskipið TORITA í tog undan austurströnd Grænlands. Beiðni um aðstoð frá skipinu barst Landhelgisgæslunni á miðvikudag þegar það var statt um 500 sml SV af Garðskaga eða á mörkum íslenska leitar- og björgunarsvæðisins og þess grænlenska.
Æfð viðbrögð og samhæfing vegna eldgoss á Jan Mayen
Varðskip, flugvél og þyrla LHG í grennd þegar grásleppubátur strandaði
Grásleppubátur með tvo menn um borð strandaði á boða í Hofsvík við Kjalarnes eftir hádegi í dag. Á sama tíma stóð yfir sameiginlega leitaræfing stjórnstöðvar, þyrlu, flugvélar og varðskips Landhelgisgæslunnar og voru því óvenjumargar gæslueiningar á svæðinu.
Prufusigling Þórs gekk vel
Varðskipið Þór fór í prufusiglingu í gær frá Bergen þar sem gerðar voru titrings- , eldsneytis- og hraðamælingar á ýmsum hröðum og undir misjöfnu álagi. Rolls Royce í Noregi skipti nýverið um aðra aðalvél skipsins vegna titrings sem mældist í skipinu og er framkvæmdin öll á ábyrgð og kostnað Rolls Royce.
Umfangsmikil leit að neyðarblysi sem sást á lofti úti fyrir Straumsvík
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst um kl. 22:00 í gærkvöldi til tilkynning um neyðarblys sem sást á lofti úti fyrir Straumsvík. Leitinni var hætt klukkan 02:52 í nótt þegar leitarsvæðið hafði verið fínkembt og þótti ljóst að neyðarblysinu hafi verið skotið upp af landi.
Sjúklingur sóttur um borð í togskip
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 19:55 í gærkvöldi aðstoðarbeiðni vegna veikinda skipverja á íslensku togskipi sem var statt um 25 sml frá landi. Þyrluvakt var kölluð út kl. 20:02 og fór TF-GNA í loftið frá Reykjavíkurflugvelli kl. 20:39.
Þyrla sótti slasaðan svifdrekaflugmann
Færeyskur línubátur staðinn að meintum ólöglegum veiðum
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SYN stóð í morgun færeyskan línubát að meintum ólöglegum veiðum innan hrygningarstoppssvæðis suður af Vestmannaeyjum. Var skipstjóra gert að ljúka við að draga línuna og halda síðan til hafnar í Vestmannaeyjum þar sem skýrslutaka mun fara fram.
Tímamót í samskiptum þyrluáhafnar við björgunaraðila á vettvangi
Í dag urðu þau tímamót að varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar/vaktstöð siglinga tengdu í fyrsta skipti samskipti þyrluáhafnar í sjúkraflugi, sem notar VHF talstöðvar og björgunaraðila á vettvangi með Tetra talstöðvar.
Nýleg tóg var bundið við tundurduflið sem kom í veiðarfæri Sóleyjar Sigurjóns
Staðsetning duflsins sem kom í veiðarfæri togarans Sóleyjar Sigurjóns kom sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar nokkuð á óvart þegar tilkynningin barst Landhelgisgæslunni. Vitað er að tundurdufl voru lögð norðar á hafsvæðinu en ekki á þessu svæði . Þegar komið var um borð sást að nýlegt tóg var í auga á duflinu.
Togveiðiskip fékk dufl í veiðarfærin
Landhelgisgæslunni barst snemma í morgun tilkynning frá togveiðiskipinu Sóleyju Sigurjóns sem fengið hafði dufl í veiðarfærin um 20 sml vestur af Reykjanestá. Þegar skipið kom að landi var áhöfnin send frá borði og var tundurduflið flutt í lögreglufylgd til eyðingar. Áhöfn Sóleyjar Sigurjóns sýndi hárrétt viðbrögð.
Fjölþjóðleg björgunaræfing fór fram í dag
Landhelgisgæslan tók í dag þátt í fjölþjóðlegu björgunaræfingunni Dynamic Mercy, sem til margra ára hefur farið fram með þátttöku stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar /JRCC Ísland og annarra björgunarmiðstöðva við Norður-Atlantshafið. Æfð voru viðbrögð við flugatviki þar sem lítil flugvél lenti í vandræðum og brotlenti í sjó.
- Fyrri síða
- Næsta síða