Fréttayfirlit
2024
október, september, ágúst, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2023
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2022
desember, nóvember, október, september, ágúst, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2021
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2020
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2019
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2018
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2017
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2016
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2015
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2014
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2013
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2012
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2011
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2010
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2009
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2008
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
2007
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
Landhelgisgæslan tekur þátt í hátíðahöldum sjómanndagsins með ýmsum hætti
Um helgina er Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur víðsvegar um land. Eins og venja er áætlar Landhelgisgæslan að taka þátt á nokkrum stöðum. Í tengslum við sjómannadagshátíðarhöldin á Austarlandi var í gær afhjúpaður minnisvarði í Vöðlavík og af því tilefni tók þyrla LHG taki þátt í björgunaræfingu með bátum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þyrla Landhelgisgæslunnar kemur við á nokkrum stöðum í dag og á morgun og starfsmenn heiðra sjómenn sem hafa týnst í hafi.
TF-SYN með sýningaratriði á Flugdeginum Reykjavíkurflugvelli
atriðin telja á þriðja tug. Hér er myndskeið sem sýnir flug TF-SYN.
Landhelgisgæslan tók þátt í ráðstefnu Frontex með ríkislögreglustjóra og lögreglunni á Suðurnesjum.
Undirrituð áætlun um viðbrögð við bráðamengun utan hafna og notkun skipaafdrepa
Í vikunni var undirrituð áætlun um viðbrögð við bráðamengun utan hafna og notkun skipaafdrepa. Áætlunin fjallar um hvernig eigi að bregðast á við þegar óhöpp verða á sjó er varða skip í efnahagslögsögu Íslands sem ógna siglingaöryggi eða hætta er á að valdi umhverfisstjóni.
Annasöm helgi að baki
Mörg krefjandi verkefni komu um helgina inn á borð Landhelgisgæslunnar og var á tímabili tvísýnt um mönnun á bakvakt þyrlu. Öll útköllin leystust þó farsællega, tveir sjómenn fluttir á sjúkrahús, bátar voru dregnir til hafnar og bátur kom í leitirnar sem hafði siglt út fyrir langdrægi ferilvöktunarkerfisins. Einnig tóku einingar Landhelgisgæslunnar þátt í samæfingum með Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu og bandarísku flugsveitinni sem er stödd hér á landi.
Þrjú útköll í dag
Talsvert annríki hefur verið í dag hjá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. Rétt fyrir klukkan þrjú barst aðstoðarbeiðni í gegnum neyðarlínuna (112) vegna smábáts sem var vélarvana út af Garðakirkju, rétt utan við höfnina í Hafnarfirði. Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-SYN var síðan kölluð út á svipuðum tíma til að sækja veikan sjómann um borð í 500 tonna íslenskt fiskveiðiskip sem var staðsett tæpar 50 sml SV af Reykjanestá,
Veikur sjómaður sóttur um borð í norskan togara
Sjóbjörgunarstjórnstöðin í NUUK á Grænlandi hafði samband við Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, vegna veiks sjómanns um borð í norskum togara, um 250 sml vestur af Snæfellsnesi, í grænlenskri lögsögu. Skipið heldur nú áleiðis til Íslands á fullri ferð.
Umfangsmikil björgunaræfing haldin á Húsavík - bandaríska flugsveitin tekur þátt
Næstkomandi laugardag er fyrirhuguð sameiginleg æfing björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar er aðild eiga að Íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni, Landhelgisgæslunnar og áhafnar C-130 Herkúles björgunar- og flutningavélarinnar sem er staðsett hér á landi vegna loftrýmisgæslu. Að auki tekur Björgunarsveitin Garðar, og fleiri heimamenn, á Húsavík þátt.
Bátur vélarvana í Önundarfirði
Landhelgisgæslunni barst kl 00:38 aðstoðarbeiðni á rás 16 frá bát sem var vélarvana skammt frá landi við Barða í sunnanverðum Önundarfirði. Báturinn fékk á sig brot og allur fiskur úti í hlið, setti hann út rekakkeri til að minnka rek. Haft var samband við báta og skip á svæðinu og hélt samstundis nærstaddur bátur til aðstoðar.
Þyrla kölluð út í nótt til leitar að ferðamönnum
Umfangsmikil leitar- og björgunaræfing á Breiðafirði
Í gær var haldin umfangsmikil leitar og björgunar samæfing á Breiðafirði milli eininga Landhelgisgæslunnar og Bjargar, björgunarskips Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Rifi. Fólst æfingin í leit að fiskibát með fjóra menn um borð, sem tilkynnti til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar að kominn væri leki að bátnum.
TF-SIF í gæslu og eftirlit um Faxaflóa og Reykjaneshrygg
TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar fór í gær í gæslu og eftirlitsflug um Faxaflóa og Reykjaneshrygg. Hafði áhöfn flugvélarinnar afskipti af tveimur bátum sem voru staðsettir um 30-35 sml, djúpt SV af Reykjanesi og voru ekki lengur innan ferilvöktunarkerfa og þ.a.l. ekki lengur með gilt haffærisskírteini. Bátar sem gera þetta eru komnir út fyrir VHF drægi og eru því í slæmu síma og fjarskiptasambandi.
Landhelgisgæslan og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins við æfingar
Áhöfn varðskipsins Þórs og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins tóku á föstudag þátt í umfangsmikilli æfingu sem fór fram um borð í varðskipinu Þór, skipi Hafrannsóknastofnunar - Bjarna Sæmundssyni og fiskverkuninni á Granda.Hátt í fimmtíu manns tóku þátt í æfingunni sem var þrískipt og fólst í að þjálfa mannskap í að samhæfa vinnubrögð við björgun, reykköfun og notkun dælubúnaðar.
Eyddu æfingadjúpsprengju á Breiðamerkursandi
Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eyddu í kvöld rússneskri æfingadjúpsprengju sem hafði rekið á land á Breiðamerkursandi. Landhelgisgæslunni barst tilkynning um torkennilegan hlut á sandinum frá lögreglunni á Hornafirði og var ákveðið að senda sprengjusérfræðingana á staðinn með þyrlunni TF-SYN.
Leki kom að fiskibát 20 sml NV af Látrabjargi
Landhelgisgæslunni barst kl. 13:01 aðstoðarbeiðni frá tæplega sjö tonna bát með einn mann um borð sem var að veiðum um 20 sjómílur NV af Látrabjargi. Leki hafði kominn að bátnum og var hann orðinn nokkuð siginn. Samstundis var óskað eftir aðstoð nærstaddra skipa og báta, björgunarskipið á Patreksfirði var kallað út auk þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flaug á staðinn með dælur. Um tíu mínútum síðar voru bátar komnir að honum og búið var að tryggja öryggi skipverjans.
Sjófarendur gæti að hlustvörslu á rás 16
Strandveiðitímabilið hófst á miðnætti þann 5. maí og hefur verið talsvert annríki í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar síðastliðna daga. Um 750 skip og bátar hafa verið á sjó sem er um 200-300 fleiri heldur en undanfarnar vikur. Veiðarnar hafa farið ágætlega af stað og aðeins minni háttar óhöpp komið upp.
- Fyrri síða
- Næsta síða